Frábær vorhátíð

Í gær var okkar árlega vorhátíð haldin í íþróttahúsinu á Hellu. Atriðin sem boðið var upp á voru hvert öðru glæsilegra en að þessu sinni var teiknimyndaþema. Salurinn var þétt setinn af áhorfendum sem fylgdust áhugasamir með. Að leikskýningu lokinni seldi útskriftarhópurinn okkar gómsæta súpu, brauð og súkkulaðiköku. 

Það voru sannarlega glaðir nemendur og starfsmenn sem mættu til vinnu í morgun en öll erum við í skýjunum með vel heppnaða hátíð.

Við ykkur kæru aðstandendur viljum við segja, takk kærlega fyrir komuna.

Hér má sjá myndir frá vorhátíðinni okkar. Enn eiga eftir að bætast við fleiri myndir svo fylgist vel með :)

-EH