Keppendur stóru upplestrarkeppninnar

Í stóru upplestrarkeppninni keppa nemendur úr skólum Rangárvallasýslu, V-Skaftafellssýslu og Vestmannaeyjum. Keppnin verður haldin þann 30. apríl næstkomandi. 
 
Síðastliðinn föstudag, þann 5. apríl, var haldin hér í Grunnskólanum Hellu forkeppni fyrir stóru upplestrarkeppnina. Nemendur lásu texta og ljóð og stóðu sig öll vel. Úrslit forkeppninnar voru eftirfarnandi.
 
Aðalmenn: Hafdís Laufey Ómarsdóttir og Jón Elli Bjarkason
Varamaður: Björgvin Geir Sigurðarson
 
Á meðfylgjandi mynd má sjá fulltrúa okkar f.v. Björgin Geir, Jón Elli og Hafdís Laufey
 
-EH