Fimman

Með einstaklingsmiðuðu námi er leitast eftir að mæta nemendum þar sem þeir eru staddir hverju sinni og finna þeim verkefni við hæfi. Þetta á bæði við um nemendur sem þurfa aukinn stuðning við námið en einnig nemendur sem eru á undan jafnöldrum í námi. Með aukinni leikni og góðri samvinnu milli nemenda og sérkennara, þroskaþjálfa og annara kennara sem koma að Fimmunni er stefnt að því að nemendur verði sjálfstæðir í sinni vinnu. Unnið er í ákveðnum lotum sem enda með reglulegu stöðumati og er forsenda viðeigandi aðlögunar og stuðnings.

Sérkennsla er ein af fleiri leiðum til að ná einstaklingsmarkmiðum í námi. Getur sú kennsla verið í formi stuðnings vegna tímabundinna örðugleika eða samfelldrar sérkennslu til lengri tíma, jafnvel alla skólagöngu nemandans. Skipulag sérkennslu og annar stuðningur getur verið með ýmsum hætti, bæði innan og utan bekkjar. Undir þetta fellur einnig notkun sérstakra kennslugagna, svo sem hljóðbóka o.fl. Nemendur sem eiga í erfiðleikum í námi eða í öðrum þáttum skólastarfsins eiga rétt á athugun hjá sérkennara, sálfræðingi og fleiri sérfræðingum innan skólakerfisins. Að þeim athugunum loknum er reynt að finna bestu úrræði hverju sinni í samráði við umsjónarkennara, skólastjórn, kennsluráðgjafa, nemendum og foreldra/forráðamönnum þeirra. Einstaka nemendur þurfa sérhæft námsefni og er það þá lagað að þörfum hvers og eins og hverjum nemanda skapaðir náms- og kennsluhættir við hæfi. Getur þetta falið í sér að nemandi fái aðlagaða stundatöflu. Nemandi er ávallt tengdur sínum bekk og umsjónarkennara og markmið að viðhalda félagslegslegum tengslum. Gerð er einstaklingsáætlun fyrir hvern nemanda þar sem námsmarkmið eru tilgreind og hún endurskoðuð reglulega. 

 Markmið kennslu í Fimmunni eru: 

  • að nemendur fái kennslu við hæfi
  • að styrkja nemendur í námi
  • að auka vellíðan og áhuga
  • að efla sjálfstraust og öryggi
  • að þjálfa sjálfstæð vinnubrögð

Þó að einstakir nemendur stundi nám sitt í Fimmunni að hluta eða að miklu leyti eiga þeir samt sem áður sinn umsjónarkennara og eru hluti af bekknum. Gerð einstaklingsáætlana er á ábyrgð umsjónarkennara og fagkennara, ásamt sérkennara. Þeir leggja drögin en áætlanirnar fullvinnast í samráði við foreldra/forráðamenn og nemendur eftir því sem við á.