Bókasafn

Bókasafnið Hellu

Hlutverk

Bókasafnið Hellu er samsteypusafn, þ.e. það er bæði skólasafn og almenningsbókasafn.

Hlutverk bókasafnsins er að þjóna nemendum, kennurum og öðru starfsfólki skólans sem og

bæjarbúum og nærsveitamönnum, vera þeim innan handar við val á bókum, hvetja til lestrar

og ýta undir jákvæða lestrarupplifun og bókaást.

Um hlutverk skólasafna segir svo í 71. gr. grunnskólanna: „í hverjum grunnskóla skal vera

skólasafn. Að skólasöfnum skal þannig búið að því er varðar húsnæði, bókakost, önnur

námsgögn og starfslið að þau geti gegnt því hlutverki að vera eitt af meginhjálpartækjum í

skólastarfinu”.

Skólasafnið leitast við að vera lifandi fræðslu-, upplýsinga- og menningarmiðstöð skólans –

hjarta skólans. Mikið er lagt upp úr lestrarörvun og lestrarhvetjandi umhverfi á skólasafninu.

Þar er fjölbreytt úrval af bókum til yndislestrar auk náms- og kennslugagna. Skólasafnið er

mikilvægur hlekkur í öllu starfi skólans, sem byggir á læsi og námsvitund. Eftir fremsta megni

reynir skólasafnið að vera öruggur og rólegur staður í annars hröðu skólastarfi, vera til staðar

fyrir nemendur sem þurfa skjól, spjall eða þá sem þurfa að staldra aðeins við þegar

skóladagurinn verður yfirþyrmandi.

Safnkostur

Safnkosturinn telur um 15.000 eintök, fræðibækur, skáldrit, kennarahandbækur, tímarit og

hljóðbækur. Þá er þónokkuð af skáldsögum bæði á ensku og pólsku. Einnig eru á safninu

spil fyrir nemendur til að njóta. Á safninu er hægt að fá lánaða i-pada til innanhússnotkunar.

Nemendum er kennt að nota safnið og safnkostinn þannig að þeir þekki þá möguleika sem

bókasafnið býður upp á með tilliti til yndislesturs, upplýsingaöflunar og vinnslu.

Allur safnkostur safnsins er skráður í bókasafnskerfið Gegni, sem er miðlægt skráningarkerfi

íslenskra bókasafna. Safnið er tengt landskerfi bókasafna. Upplýsingar um gögn safnsins eru

aðgengilegar á netinu, á leitir.is og geta nemendur og forráðamenn því skoðað og leitað úr

eigin tölvu. Nýtt bókasafnskerfi var tekið í notkun 2022 sem ber nafnið Alma og er það

samtengt gagnagrunninum gegnir.is og vefsíðunni leitir.is.

Safnkennsla

Nemendur í 2.-7. bekk koma vikulega í bókasafnstíma á safninu, hálfur hópurinn í einu. Þá

eru unnin ýmis lestrarhvetjandi verkefni, bækur lesnar, nýjar bækur kynntar og sögur búnar

til svo fátt eitt sé nefnt. Nemendum er kennt að nýta sér þá möguleika sem skólasafnið býður

til upplýsingaöflunar og vinnu. Þeir læra að leita í bókasafni að skáldritum og fræðibókum, að

fletta upp í og nota orðabók og kynnast Dewey flokkunarkerfinu. Þá er þeim kennt að ganga

vel um bækur og önnur gögn sem þar eru. Á safninu er vinnuaðstaða fyrir 12 nemendur.

Að auki er reynt eftir föngum að fá rithöfunda í heimsókn til þess að lesa upp úr verkum

sínum.

Útlán

Nemendum og starfsfólki skólans er heimilt að fá lánaðar bækur á safninu. Útlánatími er 30

dagar og hægt að endurnýja útlán ef lánþegi hefur ekki lokið við bók á þeim tíma.

1.-7.bekkur hefur sinn fasta tíma í stundaskrá til að fá lánaðar bækur og/eða skila bókum í

stærri hópum. Þó geta nemendur komið á opnunartíma safnsins eftir þörfum í minni hópum.

Nemendur í 8.-10.bekk koma eftir þörfum og eru hvattir til að nýta sér safnið eins og hægt er.

Tveir elstu árgangar leikskólans koma reglulega á safnið til að fá lánaðar bækur.

Þegar búið er að lána bækurnar út af safninu bera nemendur ábyrgð á þeim. Tvisvar á ári fá

þau börn sem eru með bók/bækur í vanskilum lista með sér heim yfir þær bækur sem þau

eiga efir að skila og er ætlast til að þau sýni hann heima. Það eru vinsamleg tilmæli að

brugðist sé skjótt við og bókum skilað.

Opnunartími

Á skólatíma er bókasafnið opið samkvæmt stundaskrá safnsins sem sjá má hér.

Almenningsopnun safnsins er á mánudögum kl. 16:00 – 17:30 og fimmtudögum kl. 19:00 –

20:00 (1.sept – 31.maí) en á fimmtudögum kl. 19:00 – 20:00 (1.júní – 31.ágúst).

Starfsmenn

Forstöðumaður bókasafnsins er Birta Huld Halldórsdóttir. Aðrir starfsmenn eru Hlín

Magnúsdóttir og Valgerður Sigurðardóttir.

Bókasafnið er bæði að finna á Facebook og Instagram: 

Bókasafnið á facebook – Bókasafnið Hellu

Bókasafnið á Instagram – bokasafnid.hellu