
Íslenskuskólinn í Grunnskólanum Hellu er fyrir nemendur með íslensku sem annað tungumál og sérstaklega þá nemendur sem tala erlent tungumál heima. Áhersla er lögð á að kenna fjölbreyttan íslensku-orðaforða úr þrepi 2, en það eru orð sem koma oft fyrir í námsbókum en heyrast sjaldan í töluðu máli. Í efstu bekkjum unglingadeildar er markmiðið að þeir nemi sértækan námsorðaforða á þrepi 2 og 3. Við kennsluna í Íslenskuskólanum er notast við falleg og myndræn plaköt til að læra orðin og festa í minni með fjölbreyttum kennsluháttum eins og málfræði, talað mál og hlustun, ritun og lestur. Íslenskuskólinn er kenndur í fjölmennum kennsluhópum nemenda með allt að 7-10 nemendum í einu. Hóparnir eru margir því Íslenskuskólinn er á öllum skólastigum alveg frá 1. bekk og upp í 10. bekk. Kennslan fer fram 3svar til 4 sinnum í viku, 40 mínútur í senn og er því búið að auka íslenskukennslu nemenda úr 6 kennslustundum með almennri íslenskukennslu yfir í 9 kennslustundir á viku að meðaltali. Markmiðið er að efla orðaforða til betri námsárangurs í öllum námsfögum skólans og skapa jöfn tækifæri til framhaldsnáms.
Gaman er að segja frá því að Íslenskuskólinn okkar fékk Menntaverðlaun Suðurlands sem veitt voru í febrúar 2026. En verðlaunin voru afhend af Frú Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Verðlaununum má líka þakka flottu nemendunum okkar því án þeirra væri enginn Íslenskuskóli.