
Áttavitinn er nýtt úrræði í Grunnskólanum Hellu. Áttavitinn er í stofu 8 og er einskonar námsver sérstaklega fyrir yngsta stig og teygir sig upp í miðstig. Hægt er að nota stofuna á margskonar hátt, kennarar geta skipt bekknum í hópa og komið með einn hópinn að vinna í Áttavitanum, það léttir líka á þeim sem eftir eru í bekkjarstofunni. Einnig er hægt að koma með einstaka nemendur sem vilja vinna í ró og stundum þurfa einstaklingsmiðað nám eða sérkennslu. Með einstaklingsmiðuðu námi er leitast eftir að mæta nemendum þar sem þeir eru staddir hverju sinni og finna þeim verkefni við hæfi. Nemendur úr nokkrum bekkjum geta verið í Áttavitanum hverju sinni og allir æfa sig í að einbeita sér að sínu námi og að virða námstíma annarra.
Þroskaþjálfi skólans er til staðar í Áttavitanum á föstum tímum daglega, þá geta kennarar sent hópa eða einstaklinga í Áttavitann þar sem þroskaþjálfinn veitir þann stuðning sem þörf er á hverju sinni.
Markmið kennslu í Áttavitanum eru:
- að allir nemendur fái kennslu við hæfi
- að vinna með minni hópa og einstaklinga
- að styrkja nemendur í námi
- að auka vellíðan og áhuga
- að veita rólegan stað til að læra án áreitis
- að efla sjálfstraust og öryggi og þjálfa sjálfstæð vinnubrögð