Frímínútur og gæsla

Í frímínútum eru starfsmenn skólans á vakt og sinna eftirliti með velferð nemenda þar sem reynt er eftir föngum að stuðla að jákvæðum félagslegum samskiptum nemenda og góðri umgengni. Stöðugt er leitað eftir úrbótum á skólalóð og leiktækjum til þess að koma í veg fyrir slys eða önnur óhöpp.

Nemendum skólans ber að halda sig innan skólalóðar á skólatíma.

Gæsla

Þann tíma sem nemendur eru ekki í kennslustundum s.s. í frímínútum og í hádegishléi eru stuðningsfulltrúar og skólaliðar við gæslu í og við skólann. Skólaliðar taka á móti nemendum við anddyri skólans á morgnana þ.e. ca. 15 mínútum áður en fyrsta kennslustund hefst. Stuðningsfulltrúar og skólaliðar annast einnig gæslu á skólalóð í frímínútum og stjórna þeir umgangi í forstofum og skólagöngum. Kennarar og annað starfsfólk annast nemendur í mötuneyti og þeim frítíma sem tengist hádegi. Skólaliðar annast umsjón með þeim nemendum sem þurfa að bíða eftir skólabílum í lok skóladags. Forráðamenn er hvattir til að benda börnum sínum á mikilvægi þess að bíða eftir skólabíl og hverfa aldrei af skólalóð án leyfis. Einnig þurfa forráðamenn að kenna börnum sínum að fara strax á skrifstofu skólans ef þeir missa einhverra hluta vegna af skólabílnum. Skólaliðar fylgjast með að allir nemendur í heimakstri skili sér í skólabílinn að loknum skóladegi.