Ábyrgð og skyldur foreldra
Í grunnskólalögum segir að foreldrar skulu gæta hagsmuna barna sinna á skólaskyldualdri. Foreldrum er skylt að veita grunnskóla upplýsingar um barn sitt sem nauðsynlegar eru fyrir skólastarfið og velferð barnsins en jafnframt eiga þeir eiga rétt á upplýsingum um skólastarfið og skólagöngu barna sinna. Foreldrar skulu hafa samráð við skólann um skólagöngu barna sinna, fylgjast með og styðja við skólagöngu þeirra og námsframvindu og stuðla að því að börnin mæti úthvíld í skólann og fylgi skólareglum.
Foreldrar bera ábyrgð á námi barna sinna og ber að fylgjast með námsframvindu þeirra í samvinnu við þau og kennara þeirra. Þá er mikilvægt að foreldrar sýni námi barnanna áhuga, leiðbeini þeim, hvetji og örvi. Mikilvægt er að skapa gott námsumhverfi heima og gefa heimanáminu tíma í erli dagsins. Foreldrar gegna ekki síst mikilvægu hlutverki í lestrarnámi barna sinna þar sem þjálfun lesturs fer bæði fram heima og í skólanum.
Menntun og uppeldi er samvinnuverkefni skóla og heimila. Þessi svið skarast meira og minna og því þarf samvinna að vera náin.
Sameiginleg verksvið skóla og heimila geta m.a. falist í eftirfarandi;
– námsstuðningi,
– að rækta farsæla mannkosti svo sem ábyrga hegðun, virðingu í samskiptum og vingjarnleika; – að efla skilning á mikilvægi menntunar og skólastarfi,
– að vera hvetjandi,
– að vera leiðandi í uppeldi sem er meðalvegurinn milli ofríkis og afskiptaleysis.
Með því að vinna sameiginlega að menntun og uppeldi á þennan hátt stuðlum við að vellíðan og þroska nemenda á jákvæðan hátt.
Formlegt samstarf heimila og skóla af hálfu skólans er skipulagt með eftirfarandi hætti:
– Foreldrasamtöl tvisvar á ári
– Að lágmarki hittast foreldrar og kennarar þrisvar sinnum á vetri.
– Námskynning að hausti.
– Fundur umsjónarkennara með öllum foreldrum.
Bekkjartenglar skólaárið 2025 – 2026
Foreldrafélag
Félagar eru forráðamenn nemenda í skólanum. Markmið félagsins eru að vinna að velferð nemenda, styðja við skólastarfið og koma á sem bestu sambandi milli skólans og heimila nemenda.
Stjórn foreldrafélagsins skólaárið 2025 – 2026 skipta eftirtaldir:
Formaður Dýrfinna Ósk Sigvarðsdóttir
Gjaldkeri Hugrún Pétursdóttir
Ritari Dögg Þrastardóttir
Meðstj. Ívar Birkisson
Meðstj. Kristrún Sif Kristinsdóttir
Meðstj. Guðbjörg Snorradóttir