Starfsmannastefna
Markmiðið í starfsmannastefnu Grunnskólans Hellu er að byggja upp fjölbreyttan hóp starfsmanna sem býr yfir ólíkri reynslu og þekkingu. Þannig eru meiri líkur á því að skólinn hafi alltaf á að skipa hæfum og áhugasömum starfsmönnum sem sýna frumkvæði og veita góða þjónustu.
Horft er til þess að hver og einn eigi rétt á góðum starfsskilyrðum og möguleikum á því að vaxa og dafna í starfi. Hvatt er til þess að starfsfólk skólans axli ábyrgð, læri nýja hluti, komi með nýjar hugmyndir og sýni það besta sem í því býr. Þá er lögð áhersla á að hver og einn leggi sitt af mörkum til að móta jákvæðan og góðan starfsanda og skapa þannig sterka liðsheild þar sem fagleg, hreinskilin skoðanaskipti eru viðhöfð við lausn álitamála.
Stefna skólans er að leggja ríka áherslu á teymisvinnu og um leið öfluga samvinnu allra starfsmanna. Með teymisvinnu bæta einstaklingar hvern annan upp og stuðla að faglegri umræðu og framþróun skólastarfs.
Helstu áherslur í starfsmannastefnu skólans eru:
- að laða að skólanum hæft starfsfólk og halda því í starfi
- að tryggja starfsfólki góð starfsskilyrði og kost á fræðslu og endurmenntun til frekari þróunar í starfi
- að hver og einn fái verkefni við hæfi og geti á þann hátt notið sín
- að starfsmenn séu virkjaðir til að móta og bæta starfsemina
- að starfsmenn séu vel upplýstir um hlutverk þeirra og ábyrgð
- að gagnkvæmt traust og gott samstarf ríki innan stofnunarinnar
- að fyrirbyggja deilur og auðvelda lausnir þeirra
- að stjórnun skólans sé markviss og ákveðin
- að starfið í skólanum grundvallist á gagnkvæmri virðingu, trausti, jafnrétti og jafnræði
- að samræma kröfur starfs- og fjölskylduábyrgðar eins og kostur er
Starfsfólk
Stafsfólk Grunnskólans Hellu leggur í störfum sínum áherslu á uppbyggjandi skólastarf þar sem metnaður ríkir og virðing er borin fyrir nemendum, foreldrum og samstarfsfólki. Lögð er áhersla á að allir starfsmenn beri ábyrgð á því að skapa andrúmsloft sem er laust við fordóma af hvaða tagi sem er. Virða ber rétt starfsmanna til að tjá sig ekki um persónuleg málefni s.s. trúarskoðanir, stjórnmálaskoðanir, kynhneigð eða heilsufar.
Þess skal gætt í öllum starfsháttum skólans að starfsmönnum sé ekki mismunað á grundvelli kynferðis, kynhneigðar, aldurs, útlits, ætternis, fötlunar, heilsufars, uppruna, trúar- eða stjórnmálaskoðana. Leitast skal við að mæta þörfum allra kynja og að á ekkert kyn halli.
Í Grunnskólanum Hellu er lögð áhersla á að markvissa starfsþróun kennara og annarra starfsmanna bæði formlega og óformlega og skulu starfsmenn skólans njóta sambærilegra tækifæra til starfsþróunar og símenntunar.
Stafsþróun starfsmanna
Frumkvæði starfsmanna sjálfra og metnaður í fræðslu og starfsþróun er lykill að árangri. Það er bæði á ábyrgð starfsmanna sjálfra og yfirmanna að viðhalda og bæta stöðugt fagþekkingu þá sem nauðsynleg er í starfinu.
Símenntunarstefna
Það er stefna Grunnskólans á Hellu að allir starfsmenn hafi tækifæri til að þróa sig og efla í starfi bæði á skólatíma og utan hefðbundins skólatíma á fjölbreyttan hátt. Símenntun er hluti af starfsþróun sem miðar að því að auka og efla færni og þekkingu starfsmanna. Starfsþróun getur stuðlað að aukinni starfsánægju, haft jákvæð áhrif á árangur í starfi og minnkað líkur á kulnun eða brotthvarfi starfsfólks.
Helstu áhersluatriði Grunnskólans Hellu í starfsþróun eru:
- skapa starfsfólki sem best skilyrði til starfsþróunar
- starfsfólk afli sér nýrrar þekkingar og hæfni til að gegna þeim störfum sem viðkomandi er falið að sinna
- styrkja sjálfstraust og sjálfsvirðingu allra starfsmanna skólans og auka færni þeirra í samskiptum við samstarfsmenn og aðra sem skólinn þjónustar
- setja krefjandi markmið og kanna reglulega hvort þeim hafi verið náð
- nýta þau tækifæri sem bjóðast til starfsþróunar
- sýna frumkvæði við að miðla af eigin þekkingu og reynslu
- hvetja hvert annað til dáða
- vera opin fyrir nýjum hugmyndum og tilbúin til að reyna þær
Skólastjóri er ábyrgur fyrir framkvæmd og úrvinnslu starfsþróunaráætlunar. Aðrir stjórnendur og starfsmenn eru skólastjóra til aðstoðar við að móta hana. Í starfsmannasamtölum skal rætt um starfsþróun, framkvæmd hennar, árangur viðkomandi starfsmanns og óskir hans fyrir næsta skólaár.
Starfsþróunaráætlun og símenntun kennara og starfsfólks
Hverjum skóla er skylt að gera símenntunaráætlun og skal áætlunin unnin og kynnt starfsfólki árlega. Skólastjóri ákvarðar almenna þörf fyrir námskeið og fræðslufundi út frá stefnu skólans, þróunaráætlun byggða á sjálfsmatsáætlun skólans og óskum starfsfólks. Hann kemur óskum um námskeið á framfæri við stjórnanda Skólaþjónustu Rangárvalla- og V-Skaftafellssýslu sem hefur umsjón með símenntun starfsfólks skóla á þjónustusvæðinu.
Símenntun má skipta í tvo meginþætti: Þættir sem eru nauðsynlegir fyrir skólann annars vegar og hins vega þættir sem starfsfólk metur æskilega eða nauðsynlega til að styrkja sig í starfi. Starfsfólki ber að gera skólastjóra grein fyrir þeim þáttum í símenntun sem þeir hafa áhuga á að sinna til að halda sér við í starfi eða bæta við nýrri þekkingu sem nýtist í starfi.
Símenntun starfsmanna telst öll formleg fræðsla eins og nám, námskeið, fræðsluerindi og fræðslufundir. Einnig telst óformleg fræðsla eins og vettvangsferðir, handleiðsla, kynningar á kennarafundum, heimsóknir í kennslustundir hjá samkennurum og skipulagðir leshringir til símenntunar.
Öllum kennurum Grunnskólans á Hellu er skylt að taka a.m.k. þátt í einu námskeiði á ári. Hér er m.a. átt við námskeið á vegum skólans, á vegum HÍ, Skólaþjónustunnar og sérgreinafélaga. Aðrir starfsmenn eru einnig hvattir til að sækja fagnámskeið hver á sínu sviði. Slík fagnámskeið og/eða fræðslufundir eru ákvarðaðir í samráði við skólastjórnendur.
Einstaklingar geta sótt símenntun sem hentar þeim persónulega. Sú menntun er fjármögnuð af skólanum ef ljóst er að hún tengist og nýtist í starfi þeirra við skólann. Að öðrum kosti geta einstaklingar sótt í endurmenntunarsjóði hjá stéttarfélögum sínum.
Skráning símenntunar
Mikilvægt er að hver og einn haldi utan um sína símenntun á þar til gerð eyðublöð sem skilað er inn til skólastjórnenda í byrjun hvers skólaárs. Þar sem símenntun er hluti af starfi starfsmanna, sérstaklega kennara, er það mjög mikilvægt hverjum og einum að hann hafi yfirlit yfir þá símenntun sem hann hefur tekið þátt í og aflað sér.
Ferli við gerð símenntunaráætlunar
Skólinn er aðili að símenntunaráætlun Skólaþjónustu Rangárvallaog Vestur-Skaftafellssýslu sem skipuleggur og gefur út áætlun fyrir haustönn og vorönn á hverju ári sem nálgast má á tengli hér að neðan.
Starfsmannasamtöl
Yfirmaður skal hlutast til um að starfsmannasamtöl séu tekin að minnsta kosti einu sinni á ári. Í starfsmannasamtali skal leitast við að fá fram hugmyndir viðmælenda um það hvernig hann geti eflt starfshæfni sína og auðgað starfið. Tilgangur starfsmannasamtala er að tryggja að kröfur og væntingar yfirmanna og starfsmanna séu ljósar og að samráð sé haft um umbætur þar sem þeirra er þörf. Ræða skal einnig fræðsluþörf og leiðir til úrbóta. Þá á starfsmaðurinn í starfsmannasamtali að geta rætt líðan sína á vinnustað, frammistöðu og óskir um starfsþróun.
Samskipti á vinnustað
Samskipti í Grunnskólanum Hellu skulu grundvallast á gagnkvæmri virðingu, umburðarlyndi og jákvæðu viðmóti. Umburðarlyndi og virðing fyrir nemendum og samstarfsfólki eru grundvallarviðmið sem framar öðru eru til þess gerð að skapa traust í öllum samskiptum. Hafa skal í heiðri allar almennar siðareglur milli einstaklinga. Ummæli, tjáning eða annað atferli starfsmanns sem ógnar, truflar eða ögrar og veldur óþægindum verður ekki liðið. Litið verður á slíka hegðun, svo og einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni og ofbeldi, sem alvarleg brot í starfi. Slík hegðun getur leitt til áminningar og starfsmissis. Vellíðan á vinnustað eru sjálfsögð réttindi hvers og eins og ber að huga vel að henni.
Vinnuumhverfi og vinnuvernd
Stefnt skal að því að vinnuumhverfi sé eins þægilegt og aðlaðandi og aðstæður leyfa. Stjórnendum ber að stuðla að heilbrigðu vinnuumhverfi og skal það vera laust við hættuleg efni og aðra vá eins og kostur er. Starfsmönnum ber að fylgja þeim kröfum sem gerðar eru til þeirra um öryggi og aðgát í starfi. Grunnskólinn Hellu er vímuefnalaus vinnustaður og notkun hvers konar vímuefna er óheimil.
Siðareglur og starfsagi
Áhersla er lögð á að starfsmenn séu stundvísir og ber stjórnanda að fylgjast með mætingum, fjarveru á vinnutíma og brotthvarfi af vinnustað áður en reglulegum vinnudegi lýkur. Starfsmenn skulu hafa í heiðri virðingu og trúnað í samskiptum, bæði innan skóla og utan, er varða málefni þeirra er tengjast starfsemi Grunnskólans Hellu. Þá ber starfsmönnum að fara að stjórnsýslulögum, upplýsingalögum og lögum um persónuvernd. Starfsmönnum ber að hlíta lögmætum fyrirmælum yfirmanna sinna, sýna heiðarleika, trúmennsku, vandvirkni og gæta þagmælsku um atriði sem þeir verða áskynja í starfi. Þagnarskylda helst þó látið sé af störfum.
Jafnrétti
Mikilvægt er að hver einstaklingur sé metinn á eigin forsendum og fyllsta jafnræðis sé gætt milli allra starfsmanna. Í Grunnskólanum Hellu er einstaklingum ekki mismunað eftir aldri, kynferði, kynþætti, fötlun, þjóðerni, né vegna trúar- eða stjórnmálaskoðana. Stjórnendur skulu sjá til þess að jafnréttisáætlun skólans sé framfylgt og hún endurskoðuð eftir þörfum.
Í 18. gr. laga nr. 10/2008, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, ber öllum fyrirtækjum og stofnunum sem hafa fleiri en 25 starfsmenn að setja sér jafnréttisáætlun eða samþætta jafnréttissjónarmið í starfsmannastefnu sína.
Ábyrgð og skyldur stjórnenda og starfsmanna
Stjórnendur og starfsfólk Grunnskólans Hellu bera sameiginlega ábyrgð á því að sú þjónusta sem veitt er, sé sem best á hverjum tíma og tryggt sé að langtímamarkmiðum sé náð.
Stjórnendur
Stjórnendum ber að tileinka sér góða og nútímalega stjórnunarhætti. Þeir skulu hafa að leiðarljósi jákvætt viðhorf til starfsmanna sinna, virkt upplýsingastreymi og dreifingu á valdi og ábyrgð. Þeir bera ábyrgð á störfum starfsmanna sinna og eiga að vinna með þeim að þeim markmiðum sem sett hafa verið. Einnig eiga þeir að gera starfsmönnum kleift að taka framförum bæði faglega og sem einstaklingar. Stjórnendur skulu leitast við að hafa samráð við starfsmenn sína um málefni vinnustaðarins og beita sér fyrir sem víðtækastri sátt um þau. Stjórnendur skulu vera í forystu þegar kemur að vinnu að þeim markmiðum sem sett eru hverju sinni.
Starfsmenn
Starfsmenn eiga að rækja starf sitt af alúð og samviskusemi í hvívetna og gæta kurteisi, lipurðar og réttsýni í starfi. Þeir eiga að vinna með öðrum starfsmönnum af heilindum að markmiðum þeim sem starfseminni eru sett. Þeim ber að hlíta lögmætum fyrirmælum yfirmanna sinna. Þeim ber að virða trúnað um það sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og gæta ber trúnaðar um. Þessi þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi. Starfsmenn eiga að gæta þess að framkoma þeirra og athafnir samrýmist því starfi sem þeir gegna. Þeir forðast að hafast nokkuð það að sem er þeim til vanvirðu eða álitshnekkis eða sem varpað getur rýrð á það starf eða starfsgrein er þeir vinna við. Þeim ber að hafa í heiðri ítrustu kröfur um ráðvendni, heiðarleika og réttlætiskennd í störfum sínum. Æskilegt er að starfsmenn leggi rækt við eigin heilsu og ástundi heilbrigt líferni.
Verksvið starfsmanna
Stefnt er að því að við ráðningu starfsmanna séu ætíð til staðar starfslýsingar fyrir öll störf. Starfslýsingar skal endurskoða með reglubundnum hætti.
Starfslýsing skólastjóra
Skólastjóri er forstöðumaður Grunnskólans Hellu og ber ábyrgð á starfi hans og veitir honum faglega forystu.
Helstu verkefni skólastjóra:
- er faglega og rekstrarlega ábyrgur fyrir skólastarfinu lögum samkvæmt og stuðlar að samstarfi allra aðila skólasamfélagsins
- sér um að skólastarfið sé í samræmi við gildandi lög og reglugerðir með hliðsjón af stefnu stjórnar byggðarsamlagsins
- er i forystu fyrir skipulagi allra þátta skólastarfsins í samvinnu við aðra stjórnendur
- undirbýr og skipuleggur nýtt skólaár og stjórnar gerð stundaskráa
- ber ábyrgð á gerð starfsáætlunar og skólanámskrár ásamt reglulegri upplýsingagjöf til allra aðila skólasamfélagsins
- kemur að úrlausn nemendamála vegna fjölþætts vanda nemenda, samkvæmt skólareglum
- hefur yfirumsjón með sérfræði- og heilbrigðisþjónustu í skólanum
- ber ábyrgð á varðveislu og meðferð trúnaðargagna
- hefur yfirumsjón með mannaráðningum og mannahaldi
- gengur frá vinnuskýrslum starfsmanna við upphaf hvers skólaárs og launasetningu, ásamt því að sjá um reglulegt launauppgjör
- ber ábyrgð á því að starfsmenn eigi kost á starfsþróunarsamtölum einu sinni á ári
- hefur frumkvæði að og hvetur starfsmenn til starfsþróunar sem nýtist í skólastarfinu
- tryggir að símenntunaráætlun skólans tengist því þróunar- og umbótastarfi sem er í gangi innan skólans á hverjum tíma og í samræmi við stefnu skólans og áherslur aðalnámskrár grunnskóla
- er tengiliður skólans við stjórn foreldrafélags og ber ábyrgð á starfsemi skólaráðs
- situr í nemendaverndarráði og áfallaráði skólans
- gengur frá samningum við skólabílstjóra og ber ábyrgð á akstursskipulagi þeirra
- er ábyrgur fyrir fjárhagslegum rekstri skólans
- ber ábyrgð á og er í forystu fyrir innra og ytra mat á skólastarfinu
Starfslýsing aðstoðarskólastjóra
Aðstoðarskólastjóri er staðgengill skólastjóra og ber í umboði skólastjóra faglega ábyrgð starfi skólans í fjarveru skólatjóra
Helstu verkefni aðstoðarskólastjóra:
- er faglegur leiðtogi í skólastarfinu og kemur að skipulagi allra þátta skólastarfsins í samvinnu við aðra stjórnendur
- vinnur í nánu samstarfi við foreldra og umsjónarkennara að þeim málum sem snúa að velferð nemenda í skólastarfinu
- Heldur utan um Mentor kerfið og er kennurum til aðstoðar varðandi nýtingu kerfisins
- Heldur utan um skóladagatal, starfsáætlanir og stundaskrár
- Heldur utan um tölvumál skólans og stýrir stefnumótunarhópi skólans í tölvu og tæknimálum
- kemur að úrlausn nemendamála samkvæmt skólareglum
- kemur að móttöku nýrra nemenda sem hefja nám við skólann
- kemur að skipulagi vettvangsferða í samráði við kennara viðkomandi árganga
- situr skólaráðsfundi og ritar fundargerðir skólaráðsfunda
- situr í öryggisnefnd skólans
- sér um kaup og úthlutun á námsbókum skólans
- er tengiliður við stjórn foreldrafélagsins
- annast samskipti við HÍ vegna móttöku kennaranema
- kemur að móttöku nýrra starfsmanna sem hefja störf við skólann
- vinnur að úrlausn mannauðsmála ásamt öðrum skólastjórnendum
- sinnir öðrum þeim störfum sem skólastjóri kann að fela viðkomandi
Starfslýsing deildarstjóra stoðþjónustu
Helstu verkefni deildarstjóra stoðþjónustu:
- er faglegur leiðtogi í skólastarfinu og kemur að skipulagi allra þátta skólastarfsins í samvinnu við aðra stjórnendur
- skipuleggur og stjórnar allri stoðþjónustu skólans
- gerir tillögu til skólastjóra um nýtingu sérkennslu-, nýbúa- og stuðningstíma sem skólinn hefur til ráðstöfunar á hverjum tíma
- hefur umsjón með námsveri skólans
- hefur yfirumsjón með umsóknum um frávik og undanþágur fyrir nemendur með sérþarfir
- kallar eftir greiningum vegna nemenda og heldur utan um þær ásamt því að fylgjast með því að þeir fái þá þjónustu sem nauðsynleg er hverju sinni
- hefur yfirsýn yfir alla þá þjónustu sem nemendur með sérþarfir njóta innan skólans
- upplýsir kennara um nemendur með sérþarfir
- er í forystu um gerð einstaklingsnámskráa og er ráðgefandi aðili við gerð þeirra
- er ráðgefandi varðandi greiningar nemenda
- er almennum kennurum skólans til faglegs ráðuneytis varðandi skipulag á kennslu nemenda með sérþarfir
- heldur utan um framkvæmd skimana í lestri og stærðfræði og ráðleggur kennurum með úrvinnslu í samráði við Skólaskrifstofu Rangárvalla- og V-Skaftafellssýslu
- sinnir fundarsetu / fundarboðun ef þess er þörf vegna nemenda með sérþarfir
- situr í nemendaverndarráði og skráir fundargerðir ráðsins
- sér um tengsl skólans og samvinnu við framhaldsskóla vegna nemenda í námsörðugleikum ásamt námsráðgjafa skólans
- heldur utan um atvinnutengt nám nemenda í unglingadeild
- er næsti yfirmaður þroskaþjálfa, sérkennara og stuðningsfulltrúa skólans og skipuleggur störf þeirra
- heldur utan um skiplag samkvæmt lögum um farsæld barna og mál tengiliða í samþættingu
- sinnir öðrum þeim störfum sem skólastjóri kann að fela viðkomandi
Starfslýsing forstöðumanns bókasafns
Forstöðumaður bókasafnsins stjórnar og hefur umsjón með bókasafninu og daglegum rekstri þess ásamt því að veita kennurum, nemendum og öðrum lánþegum faglega ráðgjöf. Forstöðumaður bókasafns starfar undir stjórn skólastjóra og aðstoðarskólastjóra í umboði skólastjóra.
Helstu verkefni forstöðumanns bókasafnsins eru:
- stjórnar safninu, hefur umsjón með því og skipuleggur daglegt starf þess
- hefur umsjón með bókum, tækjum og öðrum safngögnum
- annast áætlanagerð, val og innkaup safngagna sem og grisjun og afskriftir
- fylgist með bókaútgáfu og tekur við innkaupabeiðnum frá kennurum, nemendum og almenningi
- annast skráningu á safnkosti í aðfangaskrá og hefur umsjón með frágangi gagna sem og röðun í hillur, viðgerðir á bókum o.fl.
- sér um þróun, skipulag og framsetningu safnkostsins
- sér um útlán og móttöku gagna
- sér um gerð innheimtulista og lán frá öðrum söfnum
- stuðlar að lestrarhvetjandi umhverfi með fjölbreyttum verkefnum og góðum safnkosti
- sér um kennslu á safninu, skipuleggur aðra fræðslu og viðburði, safnkynningar og kynningar á nýjum bókum
- tekur á móti bekkjum og leikskólahópum
- veitir nemendum og kennurum ráðgjöf við val á lesefni
- sér um gerð útlánaskírteina fyrir nýja nemendur
- þróar safnið í takt við stefnu skólans í samvinnu við kennara og stjórnendur
- tekur þátt í kennara- og starfsmannafundum
- sækir námskeið, ráðstefnur og fagtengda fundi
- fylgist með nýjungum á sviði bókasafns- og upplýsingafræða
- tekur saman útlánatölfræði hvers árs
- sér um almenningsopnun og samfélagsmiðla safnsins
- sinnir öðrum þeim störfum sem skólastjóri kann að fela viðkomandi
Starfslýsing skólaritara
Skólaritari starfar á skrifstofu skólans og tekur þannig þátt í því uppeldisstarfi sem fram fer innan skólans. Skólaritari lýtur daglegri verkstjórn skólastjóra. Hann starfar undir stjórn skólastjóra og aðstoðarskólastjóra í umboði skólastjóra.
Helstu verkefni skólaritara:
- stuðlar markvisst að jákvæðum samskiptum og gagnkvæmu trausti
- sinnir daglegri afgreiðslu á skrifstofu skólans ásamt símsvörun
- annast forfallaskráningu og eða aðrar skráningar vegna nemenda í Mentor
- sér um innritun nemenda í Mentor kerfið
- afgreiðir erindi nemenda eða vísar nemendum til þeirra aðila sem nauðsyn ber til hverju sinni
- sér til þess að skilaboð berist til kennara og annarra starfsmanna
- tekur á móti pósti og kemur honum í réttar hendur
- annast móttöku þeirra sem erindi eiga við starfsfólk skólans
- afgreiðir ýmis gögn til kennara og annarra starfsmanna skólans
- skilar inn uppgjöri fyrir mötuneyti í lok hvers mánaðar
- er tengiliður skólans við skólabílstjóra varðandi akstur
- móttekur greiðslur fyrir ýmsa þætti skólastarfsins
- sinnir móttöku skjala á skrifstofu skólans
- sinnir öðrum þeim störfum sem skólastjóri kann að fela viðkomandi
Starfslýsing verkefnisstjóra ÍSAT kennslu
Verkefnisstjóri stjórnar og skipuleggur ÍSAT kennslu skólans ásamt því að veita kennurum faglega ráðgjöf. Verkefnisstjóri starfar undir stjórn skólastjóra og aðstoðarskólastjóra í umboði skólastjóra.
Helstu verkefni verkefnisstjóra:
- skipuleggur og stjórnar framkvæmd kennslu íslensku sem annars tungumáls í skólanum
- sinnir kennslu tvítyngdra nemenda, bæði í fámennum og fjölmennum hópum
- kennir íslensku í hópum á öllum aldursstigum í Íslenskuskóla á skólatíma (þróunarverkefni)
- tekur stöðumat á nýkomnum nemendum frá öðrum löndum sem hefst með móttökufundi í samstarfi við skólastjóra, umsjónarkennara og foreldra
- sér um íslenskunám nýkominna nemenda og útbýr einstaklingsnámskrár og hæfniviðmið í Mentor
- heldur utan um skipuleggur námsmat vegna ÍSAT nemenda og er leiðandi í skipulagi og þróun þess innan skólans ásamt deildarstjóra stoðþjónustu
- aðstoðar við aðlögun námsefnis fyrir nemendur til að vinna inni í bekk og bendir á námsefni sem skerpir á sérstökum þáttum
- er þátttakandi í teymisfundum, árganga – og stigsfundum ef þess er óskað, þar sem hann er ráðgefandi um ýmsa þætti er varða ÍSAT nemendur
- er þátttakandi í teymisvinnu sérkennara
- hefur yfirumsjón með skilum náms- og kennsluáætlana vegna ÍSAT kennslu og birtingu þeirra á vef skólans í samvinnu við deildarstjóra stoðþjónustu
- fyllir út tölulegar upplýsingar er varða ÍSAT kennsluna í skólanum
- veitir starfsfólki skólans ráðgjöf varðandi kennslu nemenda af erlendum uppruna
- tekur þátt í teymisfundum með kennurum og foreldrum ef þess er óskað
- tekur þátt í þróunarvinnu með Fjölmenningarteymi RY
- kemur að kennslu orðaforða hjá leikskólahópi Heklukots (þróunarverkefni)
- sinnir öðrum þeim störfum sem skólastjóri kann að fela viðkomandi
Starfslýsing stigstjóra
Stigstjóri er leiðtogi kennara á því skólastigi þar sem hann er stigstjóri og hefur innsýn yfir allt skipulag á skólastiginu. Stigstjóri starfar undir stjórn skólastjóra og aðstoðarskólastjóra í umboði skólastjóra.
Helstu verkefni stigstjóra:
- Fylgist með að skipulag skólastarfsins sé í samræmi við skólanámskrá og að eðlileg samfella sé í námi milli árganga
- Hefur forgöngu um sameiginlegt skipulag vegna uppbrotsdaga, ferðalaga, vettvangsferða, þemaverkefna og skemmtana í samráði við umsjónarkennara
- Heldur utan um skipulag haust- og vorferða
- Fylgist með símenntunarmöguleikum á sínu skólastigi og deilir með kennurum og stjórnendum
- Undirbýr skipuleggur og stjórnar stigsfundum þar sem fjallað er um skipulag viðkomandi skólastigs
- Stigstjóri er kennurum á sínu skólastigi til aðstoðar er varðar nám, kennslu og kennsluhætti
- Sinnir öðrum þeim verkefnum sem skólastjóri felur honum og varða skólastigið
Starfslýsing umsjónarkennara
Umsjónarkennari hefur umsjón með ákveðnum árgangi í samvinnu við aðra umsjónarkennara á sínu skólastigi. Yfirmaður hans er skólastjóri og aðstoðarskólastjóri sem staðgengill skólastjóra.
Helstu verkefni umsjónarkennara:
- er fyrsti tengiliður skólans við nemendur sína og forráðamenn þeirra
- fylgist með námi nemenda sinna, þroska, líðan, námsframvindu og almennri velferð
- leiðbeinir þeim í námi og starfi, aðstoðar og ráðleggur þeim um persónuleg mál
- leggur sig fram um að mynda sem besta bekkjarmenningu með nemendum sínum
- fylgist með skólasókn, atferli og skráningum í dagbók umsjónarnemenda sinna og bregst við ef þurfa þykir samkvæmt skólareglum
- leitast við að vera í góðu samstarfi við foreldra umsjónarnemenda sinna um allt er viðkemur nemendum
- veitir foreldrum reglulega upplýsingar um það starf sem fram fer í skólanum tengt nemendum
- ber ábyrgð á að kennsla og kennsluhættir séu skipulagðir með tilliti til þarfa og getu nemenda sinna
- hefur yfirsýn yfir námsmat nemenda og sér til þess að foreldrar séu upplýstir um stöðu barna sinna
- hefur yfirsýn yfir skipulag skólastarfsins er varðar skólastig umsjónarnemendanna
- er í góðu samstarfi við deildarstjóra stoðþjónustu, þroskaþjálfa og námsráðgjafa varðandi sértækar þarfir nemenda sinna og þjónustu við þá
- er í góðu samstafi við alla þá aðila sem koma að starfi bekkjarins, stuðningsfulltrúa, skólaliða og kennara
- fylgist með aðbúnaði til náms og kennslu og gerir skólastjóra viðvart sé úrbóta þörf
- hefur umsjón með kennslustofu, sér um að umgengni sé góð og leitast við að gera stofuna aðlaðandi
- vinnur að reglulegri endurskoðun skólanámskrár og starfsáætlunar skóla í samstarfi við þá er þurfa þykir
- tekur þátt í samvinnu kennara viðkomandi skólastigs og er í tengslum við önnur skólastig
- situr fundi, námskeið og tekur þátt í annarri þeirri fræðslu sem boðið er upp á í skólanum eða í tengslum við skólastarfið
- tekur þátt í mótun, þróun og skipulagi skólastarfsins í samráði og samvinnu við skólastjórn
- sinnir öðrum þeim verkefnum sem skólastjórn kann að fela viðkomandi
Starfslýsing kennara
Grunnskólakennari sinnir kennslu í skilgreindum árgöngum og skólastigum grunnskóla. Yfirmaður hans er skólastjóri og aðstoðarskólastjóri sem staðgengill skólastjóra.
Helstu verkefni grunnskólakennara:
- fylgist með námi nemenda sinna, þroska, líðan, námsframvindu og almennri velferð
- leiðbeinir þeim í námi og starfi, aðstoðar og ráðleggur þeim um persónuleg mál
- leggur sig fram um að mynda sem besta bekkjarmenningu með nemendum sínum
- fylgist með skólasókn og atferli nemenda sinna og bregst við ef þurfa þykir ásamt því að gera umsjónarkennara viðvart ef hann telur þörf á
- færir reglulega nauðsynlegar upplýsingar í viðeigandi skráningarkerfi
- ber ábyrgð á að kennsla og kennsluhættir séu skipulagðir með tilliti til þarfa og getu nemenda sinna
- hefur yfirsýn yfir námsmat nemenda og sér til þess að umsjónarkennarar séu upplýstir um stöðu nemenda sinna
- hefur yfirsýn yfir skipulag skólastarfsins á viðkomandi skólastigi
- er í góðu samstarfi við deildarstjóra stoðþjónustu, þroskaþjálfa og námsráðgjafa varðandi sértækar þarfir nemenda sinna og þjónustu við þá
- er í góðu samstafi við alla þá aðila sem koma að starfi bekkjarins, stuðningsfulltrúa, skólaliða og annarra kennara
- fylgist með aðbúnaði til náms og kennslu og gerir skólastjóra viðvart sé úrbóta þörf
- hefur umsjón með kennslustofu, sér um að umgengni sé góð og leitast við að gera stofuna aðlaðandi
- vinnur að reglulegri endurskoðun skólanámskrár og starfsáætlunar skóla í samstarfi við þá er þurfa þykir
- tekur þátt í samvinnu kennara viðkomandi skólastigs og er í tengslum við önnur skólastig
- situr fundi, námskeið og tekur þátt í annarri þeirri fræðslu sem boðið er upp á í skólanum eða í tengslum við skólastarfið
- tekur þátt í mótun, þróun og skipulagi skólastarfsins í samráði og samvinnu við skólastjórn
- sinnir öðrum þeim verkefnum sem skólastjórn kann að fela viðkomandi
Starfslýsing þroskaþjálfa
Þroskaþjálfi er í samstarfi við alla starfsmenn skólans eftir því sem við á. Hann lýtur daglegri verkstjórn deildarstjóra stoðþjónustu. Hann starfar undir stjórn skólastjóra og aðstoðarskólastjóra í umboði skólastjóra.
Helstu verkefni þroskaþjálfa:
- vinnur að bekkjar- og einstaklingsáætlunum í samráði við deildarstjóra stoðþjónustu, kennara og aðra fagaðila eftir því sem við á
- annast þjálfun og fræðslu um fatlanir og þroskafrávik fyrir stuðningsfulltrúa og aðra starfsmenn skólans
- aflar og miðlar upplýsingum vegna þarfa nemenda með sértækar þarfir
- gerir færni- og þroskamat
- aðstoðar nemanda/nemendur við daglegar athafnir og virkjar þá til þátttöku í skólastarfinu
- aðstoðar nemendur við að fylgja settum reglum um hegðun, umgengni og vinnubrögð
- tekur þátt í kennara- og starfsmannafundum
- skipuleggur þjálfunaraðstæður, velur/útbýr þjálfunar- og námsgögn, fylgir eftir settum markmiðum, metur árangur og endurskoðar markmið í samstarfi við samstarfsaðila
- situr skila- og samráðsfundi með foreldrum og öðrum eftir því sem við á hverju sinni
- veitir foreldrum nemenda ráðgjöf og leiðbeiningar er lúta að sértækum þörfum nemenda
- veitir ráðgjöf og fræðslu vegna nemenda með sértækar þarfir til kennara, stuðningsfulltrúa og annarra starfsmanna skólans
- situr nemendaverndarráðsfundi þegar fjallað er um skjólstæðinga viðkomandi að ósk skólastjórnenda
- er í samskiptum við utanaðkomandi aðila vegna nemenda með sértækar þarfir í samráði við skólastjórnendur
- kemur að samskiptum við foreldra nemenda sinna í samvinnu við deildarstjóra stoðþjónustu og umsjónarkennara
- eflir og viðheldur fagþekkingu sinni með reglubundinni endur- og símenntun
- er tengiliður í málum eins og þurfa þykir samkvæmt lögum um farsæld barna
- vinnur önnur þau verkefni sem skólastjóri felur honum og eðlilegt getur talist að rúmist innan verksviðs hans
Starfslýsing stuðningsfulltrúa
Stuðningsfulltrúi er kennara til aðstoðar við að sinna einum eða fleiri nemendum sem þurfa sérstaka aðstoð. Starfið miðar fyrst og fremst að því að auka færni og sjálfstæði þessara nemenda; félagslega, námslega og í daglegum athöfnum. Stuðningsfulltrúi starfar innan árganga, skólastiga með einstaka nemendur eða námshópa. Deildarstjóri stoðþjónustu er næsti yfirmaður stuðningsfulltrúa og skipuleggur dagleg störf stuðningsfulltrúa. Kennarar verkstýra stuðningsfulltrúum við nám og störf nemenda.
Helstu verkefni stuðningsfulltrúa:
- aðstoðar nemendur við daglegar athafnir og þátttöku í skólastarfi
- vinnur eftir áætlun sem útbúin hefur verið í samráði kennara, deildarstjóra stoðþjónustu og annarra ráðgjafa
- aðstoðar nemendur við að ná settum viðmiðum samkvæmt skólanámskrá/einstaklingsnámskrá undir leiðsögn kennara og deildarstjóra stoðþjónustu
- aðlagar/vinnur verkefni að getu nemandans samkvæmt leiðbeiningum kennara
- sinnir eftir aðstæðum nemendum í bekk til þess að kennari geti aðstoðað nemanda sem þarf séraðstoð vegna sértækra þarfa sinna
- ýtir undir færni og sjálfstæði nemenda í námi og daglegum athöfnum
- hvetur nemendur til að gera sem mest sjálfa og hrósar þeim fyrir viðleitni í þá átt
- aðstoðar nemendur við að fylgja settum reglum um hegðun, umgengni og vinnubrögð
- styrkir jákvæða hegðun nemenda og vinnur gegn neikvæðri hegðun
- aðstoðar nemendur við að klæðast, matast og aðrar athafnir daglegs lífs, ef þeir eru ófærir um það sjálfir
- leitast við að styðja nemendur í félagslegum samskiptum í skólastarfinu
- veitir nemendum félagslegan stuðning með því að hlusta á frásagnir og reynslu þeirra og spjalla við þá þegar aðstæður leyfa
- fylgir einum eða fleiri nemendum eftir um skólann, í frímínútum og í vettvangsferðum og aðstoðar þá eftir þörfum
- fylgir ef þurfa þykir nemendum í íþróttahús/sundlaug
- situr tilfallandi fundi eftir því sem við á
- vinnur að faglegum undirbúningi eftir að vinnu með nemendum lýkur hvern dag
- annast önnur þau störf sem honum kunna að verða falin af yfirmanni og falla innan eðlilegs starfssviðs hans
Starfslýsing skólaliða
Meginhlutverk skólaliða er að stuðla að velferð og vellíðan nemenda og tekur hann þannig þátt í því uppeldisstarfi sem fram fer innan skólans. Hann lýtur daglegri verkstjórn umsjónarmanns. Hann starfar undir stjórn skólastjóra og aðstoðarskólastjóra í umboði skólastjóra.
Helstu verkefni skólaliða:
- aðstoðar nemendur í leik og starfi og leiðbeinir þeim í samskiptum þeirra við aðra nemendur og starfsfólk skólans
- að hafa auga með nemendum sem lenda í eyðu t.d. vegna forfalla kennara
- veitir fyrstu hjálp ef slys eða óhöpp verða
- hefur umsjón með nemendum í frímínútum hvort sem er úti eða inni, á göngum og í búningsklefum íþróttahúss og sundlaugar
- aðstoðar nemendur ef þurfa þykir við frágang á fatnaði þeirra, hefur eftirlit með munum þeirra, námsgögnum, fötum og skófatnaði
- hefur umsjón með fötum og öðrum munum sem lenda í óskilum
- sér um daglega ræstingu, heldur húsnæði og lóð skólans hreinum og snyrtilegum, skv. vinnuskipulagi
- fer í sendiferðir og sér um innkaup, þegar það á við
- sinnir uppröðun og tilfærslu á tækjum og húsgögnum ef leitað er eftir því
- gætir nemenda ef kennari þarf nauðsynlega aðeins að bregða sér frá
- gera húsverði viðvart um bilanir, sem vart verður við, og einnig ef efni eða áhöld vantar til ræstinga
- fylgir nemendum milli kennslusvæða þegar þess er þörf
- sinnir öðrum þeim verkefnum sem skólastjóri eða húsvörður í umboði skólastjóra kann að fela viðkomandi og fallið geta að ofangreindum markmiðum
Starfslýsing náms- og starfsráðgjafa
Hlutverk náms- og starfsráðgjafa er að standa vörð um velferð nemenda og vera talsmaður þeirra. Hann leitar einnig lausna í málum nemenda og gætir þess að þeir búi við réttlæti og jafnrétti innan skólans. Hann er starfsmaður Skólaþjónustu Rangárvalla- og vestur Skaftafellssýslu .
Helstu verkefni náms- og starfsráðgjafa:
- veitir ráðgjöf um vinnubrögð og námsaðferðir nemenda
- veitir nemendum persónulegan og félagslegan stuðning ásamt því að veita foreldrum ráðgjöf
- er ráðgefandi og er til aðstoðar í eineltis- og forvarnarmálum
- situr í Nemendaverndarráði og samskipta og aðgerðarteymi
- annast kennslu í náms- og starfsfræðslu á unglingastigi
- er ráðgefandi við náms- og starfsval nemenda
- skipuleggur forvarnir fyrir nemendur í samstarfi við skólastjórnendur og kennara
- býður upp á ýmis fræðslu tengda prófkvíða, námstækni og sjálfstyrkingu
- er skólastjórnendum og kennurum til ráðgjafar og aðstoðar í tengslum við fjölþættan vanda nemenda
- framkvæmir ýmsar þær kannanir sem þörf er á í þágu nemenda
- skipuleggur fræðslu og kynningar fyrir starfsfólk, nemendur og foreldra þeirra
- sinnir öðrum þeim störfum sem skólastjóri kann að fela viðkomandi
Starfslýsing húsvarðar
Húsvörður skólans sér um og hefur umsjón með húsnæði skólans og tekur þannig þátt í því uppeldisstarfi sem fram fer innan skólans. Hann starfar undir stjórn skólastjóra og aðstoðarskólastjóra í umboði skólastjóra.
Helstu verkefni húsvarðar:
- er næsti yfirmaður skólaliða, skipuleggur og ber ábyrgð á störfum þeirra
- hefur eftirlit með nemendum þegar aðstæður kalla á slíkt og leiðbeinir þeim í samskiptum við aðra nemendur og starfsfólk skólans
- fer með umsjón öryggismála skólans og kemur að skipulagi neyðaráætlana ásamt aðstoðarskólastjóra
- situr í Öryggisnefnd skólans
- veitir fyrstu hjálp ef slys eða óhöpp verða
- sér um að húsnæði skólans og allur búnaður, ásamt skólalóð, séu ávallt í fullnægjandi ástandi
- sér um að húsnæðið sé opið við upphaf skóladags og ber ábyrgð á frágangi húsnæðis við lok skóladags
- hefur umsjón með lyklamálum til starfsmanna skólans og annarra sem þurfa þykir
- sinnir almennu viðhaldi skólahúsnæðis og lóðar og kallar iðnaðarmenn til verka
- hefur umsjón með ræstingu skólahúsnæðis ásamt því að sjá um skipulagningu hennar
- sér um innkaup á ræstivörum og öðru er varðar verksvið viðkomandi og einnig að gjaldaliðir ræstingar séu innan fjárheimilda
- sér um að almennur tækjakostur skólans sé jafnan í lagi og kemur þeim tækjum skólans sem biluð eru til viðgerðar.
- hefur umsjón með því að salur og annað húsnæði sé undirbúið fyrir fundi, skemmtanir og aðrar þær uppákomur sem starf skólans kallar á
- sér um samskipti við leigutaka vegna skammtíma- eða langtímaleigu
- Kemur með tillögur um meiriháttar viðhald og leggur þær fyrir skólastjóra og eigna- og framkvæmdasvið
- sér um að hiti, lýsing og loftræsting skólahúsnæðis sér fullnægjandi og starfi rétt
- sér um flokkun og frágangs sorps frá skólanum
- hefur umsjón með merkingum á rýmum skólans
- dregur fána að húni og tekur niður á lögboðnum fánadögum eða við önnur tækifæri í samráði við skólastjóra
- sinnir öðrum þeim störfum sem skólastjóri kann að fela viðkomandi
Starfslýsing matreiðslumanns
Hlutverk matreiðslumanns er að sjá um daglegan rekstur á mötuneyti nemenda skólans og skipuleggja reksturinn í samvinnu við skólastjóra. Enn fremur sér matreiðslumaður um skipulag á vinnu þeirra starfsmanna sem í eldhúsinu starfa undir hans stjórn. Matreiðslumaður starfar undir stjórn skólastjóra og aðstoðarskólastjóra í umboði skólastjóra.
Helstu verkefni matreiðslumanns:
- rekur mötuneyti með gæði matar og næringargilda að leiðarljósi ásamt hagkvæmni í rekstri
- hefur yfirumsjón með matseld, undirbúningi og frágangi í mötuneyti
- sér um allar vörupantanir fyrir mötuneyti, kennslueldhús og kaffistofu starfsmanna
- sér um frágang og geymslu matvæla í samvinnu við starfsfólk í mötuneyti
- skipuleggur og gengur frá matseðlum fyrir hvert tímabil
- hefur umsjón og eftirlit með þrifum á eldhúsi
- hefur umsjón með tækjum og lausum búnaði í mötuneyti
- sinnir daglegri verkstjórn í mötuneyti og tekur þátt í vinnu starfsfólks s.s. afgreiðslu, uppvaski og frágangi
- ber ábyrgð á öryggi og hollustu starfsmanna sem vinna í mötuneyti skólans
- vinnur í samvinnu við skólastjóra að skipulagi mötuneytis nemenda í tengslum við daglegan skólarekstur
- er næsti yfirmaður aðstoðarmatráðs og annarra þeirra sem í mötuneytinu starfa
- sinnir öðrum þeim störfum sem skólastjóri kann að fela viðkomandi
Starfslýsing aðstoðarmatráðs
Aðstoðarmatráður er staðgengill matreiðslumanns í fjarveru hans. Aðstoðarmatráður starfar undir stjórn matreiðslumanns og skólastjóra í fjarveru hans.
Helstu verkefni aðstoðarmatráðs:
- aðstoðar við matreiðslu, undirbúning og frágang matvæla
- sinnir frágangi í mötuneyti, uppvaski og þrifum
- aðstoðar þá nemendur sem þurfa matarskömmtun
- fylgist með því að nemendur og starfsfólk virði þær reglur sem gilda í matsal
- þegar leikskólinn er eingöngu starfandi hefur aðstoðarmatráður yfirumsjón með mötuneytinu í samráði við skólastjóra en ber þó ekki ábyrgð á innkaupum og rekstrarlegri stöðu
- sinnir öðrum þeim störfum sem matreiðslumaður kann að fela viðkomandi
Starfslýsing aðstoðarmanns í mötuneyti
Aðstoðarmatráður starfar undir stjórn matreiðslumanns og aðstoðarmatráðs í fjarveru hans.
Helstu verkefni aðstoðarmanns:
- aðstoðar við matreiðslu, undirbúning og frágang matvæla
- sinnir frágangi í mötuneyti, uppvaski og þrifum
- aðstoðar þá nemendur sem þurfa matarskömmtun
- fylgist með því að nemendur og starfsfólk virði þær reglur sem gilda í matsal
- sinnir öðrum þeim störfum sem matreiðslumaður kann að fela viðkomandi
Starfslýsing umsjónarmanns skóladagheimilis
Umsjónarmaður skóladagheimilis hefur yfirumsjón með starfi og skipulagi skóladagheimilisins. Umsjónarmaður er næsti yfirmaður þeirra sem starfa í skóladagheimilinu. Yfirmaður hans er skólastjóri og aðstoðarskólastjóri sem staðgengill skólastjóra.
Helstu verkefni umsjónarmanns:
- ber ábyrgð á þeim börnum sem skráð eru í skóladagheimilið á þeim tíma sem vistun þeirra nær yfir
- ber ábyrgð á innra skipulagi skóladagheimilisins
- hefur ásamt öðru starfsfólki yfirsýn yfir hvar börnin eru stödd á vistunartíma þeirra
- þarf ásamt öðru starfsfólki að aðstoða börnin við að halda tímasetningar innan skipulagsins
- ber ábyrgð á að dagskipulag sé sýnilegt hvern dag og sé einnig sérstaklega sett upp fyrir þá nemendur sem þurfa sértækt skipulag
- er tilbúinn að koma að lausn þeirra mála sem upp koma i samvinnu við viðeigandi aðila
- heldur uppi aga og styður við börnin í leik þeirra
- virkjar börnin í frágangi eftir leik þeirra og störf
- sendir upplýsingar um notkun á skóladagheimilinu til innheimtufulltrúa sveitarfélagsins í lok hvers mánaðar
- ef huga þarf að forföllum, innkaupum eða öðrum fjárútlátum skal ræða það við skólastjórnendur
- gengur í önnur þau störf sem sinna þarf tengt starfseminni sem skólastjóri kann að fela viðkomandi
Starfslýsing starfsmanns skóladagheimilis
Starfsmaður skóladagheimilis sinnir starfi sínu á skóladagheimilinu samkvæmt fyrirmælum umsjónarmanns sem er næsti yfirmaður starfsmanna. Yfirmaður hans er skólastjóri og aðstoðarskólastjóri sem staðgengill skólastjóra.
Helstu verkefni starfsmanns:
- ber ábyrgð á þeim börnum sem skráð eru í skóladagheimilinu á þeim tíma sem vistun þeirra nær yfir ásamt umjónarmanni
- hefur ásamt öðru starfsfólki yfirsýn yfir hvar börnin eru stödd á vistunartíma þeirra
- þarf ásamt öðru starfsfólki að aðstoða börnin við að halda tímasetningar innan skipulagsins
- stuðlar að vellíðan barnanna og fylgir því skipulagi sem lagt er upp með í starfinu
- er tilbúinn að koma að lausn þeirra mála sem upp koma i samvinnu við viðeigandi aðila
- heldur uppi aga og styður við börnin í leik þeirra
- virkjar börnin í frágangi eftir leik þeirra og störf
- gengur í önnur þau störf sem sinna þarf tengt starfseminni sem umsjónarmaður kann að fela viðkomandi