Í vinnslu……..
Bæjarhellan var fyrst sett upp í Grunnskólanum Hellu skólaárið 2013 – 2014 þá sem lokaverkefni í meistaranámi við Háskóla Íslands. Verkefnið hefur lifað góðu lífi síðan og er sett upp einu sinni á hverju skólaári.
Bæjarhellan er þróunarverkefni og hefur því breyst og þróast á þeim rúma áratug sem það hefur verið við líði við skólann.
Verkefnið felur í sér að setja upp lítið sjálfbært hagkerfi í skólanum þar sem nemendur sækja um starf á vinnustöðum við kennarar hafa sett upp. Nemendur mæta svo til “vinnu” í þrjá daga og framleiða ýmsan varning eða afþreyingu sem er seldur á markaðsdegi Bæjarhellunnar. Nemendur fá greidd laun í hellum en ein hella jafngildir einni íslenskri krónu. Foreldrar og aðrir í samfélaginu geta keypt sig inn í hagkerfið í svokölluðum Bæjarhellubanka. Þær íslensku krónur sem koma inn í hagkerfið eru nýttar til að kaupa aðföng árið eftir. Bæjarhellusjóðurinn hefur sömuleiðis styrkt góðgerðafélög og keypt eitthvað sem vantar í skólann sem nýtist öllum nemendum svo sem tæknilego og þrívíddarprentara svo fátt eitt sé nefnt.
Bæjarhellan átti sinn eigin fána og á 10 ára afmælinu var útbúinn nýr fáni sem verður notaður næstu árin.

Hér að ofan er fyrsti fáni Fríríkis Bæjarhellunnar frá árinu 2014. Fánann hannaði Guðmunda Þórunn Þorvarðardóttir f. 2003.

Hér má sjá fánann sem hannaður var í tilefni af 10 ára afmæli Bæjarhellunnar. Alma Sóley Kristinsdóttir f.2008 hannaði fánann.
Hér má finna alls kyns efni sem framleitt hefur verið á Bæjarhellunni frá upphafi verkefnisins árið 2014
Heimasíða Bæjarhellunnar í tenslum við lokaverkefni 2014
Sumar á Hellu, myndband frá fyrstu Bæjarhellunni árið 2014
Bæjarhellubandið, lag og myndband frá árinu 2014
BH – grín, myndband frá árinu 2015
Heimildarmynd um Bæjarhelluna frá árinu 2015
BH – grín, myndband frá árinu 2016
Setningarræða bæjarstjóra, árið 2016
Heimildarmynd um Bæjarhelluna frá árinu 2016
Leirkalla stuttmynd frá árinu 2017
Leirkalla stuttmynd 2 frá árinu 2017
Leirkall, stuttmynd, prufa 2017
Legokalla stuttmynd frá árinu 2017
BH – grín, myndband frá árinu 2019
Bæjarhellulagið, samið á Bæjarhellunni árið 2019
BH – grín, myndband frá árinu 2023
Heimildarmynd um Bæjarhelluna 2024 – 2025
Fréttskot 1 frá Bæjarhellu 2024
Fréttaskot 2 frá Bæjarhellu 2024
Fréttaskot 3 frá Bæjarhellu 2024
Jólatrésföndur, kennslumyndband útbúið á Bæjarhellunni 2024