Skólaráð

Skólaráð

Í Grunnskólanum Hellu starfar skólaráð skv. 8. gr. grunnskólalaga nr. 91/2008 en þar segir:

„Við grunnskóla skal starfa skólaráð sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans. Skólaráð fjallar um skólanámskrá skólans, árlega starfsáætlun, rekstraráætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið. Skólaráð skal fá til umsagnar áætlanir um fyrirhugaðar meiri háttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skóla áður en endanleg ákvörðun um þær er tekin. Skólaráð fylgist almennt með öryggi, aðbúnaði og almennri velferð nemenda. Skólanefnd, sbr. 6. gr., getur með samþykki sveitarstjórnar falið skólaráðum einstakra skóla ákveðin verkefni þessu til viðbótar.
Skólaráð skal skipað níu einstaklingum til tveggja ára í senn, tveimur fulltrúum kennara ásamt einum fulltrúa annars starfsfólks í viðkomandi skóla, tveimur fulltrúum nemenda og tveimur fulltrúum foreldra, auk skólastjóra sem stýrir starfi skólaráðs og ber ábyrgð á stofnun þess. Skólaráð velur að auki einn fulltrúa grenndarsamfélags til að sitja í ráðinu eða viðbótarfulltrúa úr hópi foreldra. Auk þess skal skólastjóri boða til sameiginlegs fundar skólaráðs og stjórnar nemendafélags að lágmarki einu sinni á ári“.

Í reglugerð 1157/2008 um skólaráð við grunnskóla er tekið fram að skólaráð skuli taka þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans í samræmi við stefnu sveitarfélags um skólahald.  Samkvæmt reglugerðinni skulu verkefni ráðsins vera eftirfarandi:  

Af hverju skólaráð

Skólaráð er mikilvægur þáttur í því að koma sjónarmiðum sem flestra á framfæri og tryggja samráð við þá sem koma að málefnum skólans áður en endanlegar ákvarðanir eru teknar. Þátttaka nemenda í skólaráðum byggir á því að börn eiga rétt á því að koma skoðunum sínum á framfæri í málum sem þau varða en það er í samræmi við 12. grein barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Hlutverk skólaráðs

  1. fjallar um skólanámskrá, rekstraráætlun, starfsáætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið
  2. fjallar um fyrirhugaðar meiriháttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skóla og gefur umsögn áður en endanlegar ákvarðanir um þær eru teknar
  3. tekur þátt í að móta stefnu og sérkenni skóla og tengsl hans við grenndarsamfélagið
  4. fylgist með öryggi, húsnæði, aðstöðu, aðbúnaði og almennri velferð nemenda
  5. fjallar um skólareglur, umgengnishætti í skólanum
  6. fjallar um erindi frá skólanefnd sveitarfélags, foreldrafélagi, kennarafundi, almennum starfsmanna­fundi, nemendafélagi, einstaklingum, menntamálaráðuneyti, öðrum aðilum varðandi málefni sem talin eru upp í þessari málsgrein og veitir umsögn sé þess óskað
  7. tekur þátt í öðrum verkefnum á vegum skólanefndar að fengnu samþykki sveitarstjórnar

Fulltrúar nemenda

Fulltrúar nemenda í skólaráði skulu vera kosnir samkvæmt starfsreglum nemendafélagsins. Fulltrúar nemenda bera ábyrgð á því að sjónarmið nemenda komist til skila.

Fulltrúar nemenda þurfa meðal annars að:

  • vera aðgengilegir fyrir nemendur og geta miðlað upplýsingum á milli þeirra og skólaráðs
  • vera reiðubúnir að hlusta á samnemendur sína og tala þeirra máli í skólaráði
  • vera óhræddir við að tjá sig og geta staðið á sínu
  • vera tilbúnir til þess að leita sér aðstoðar ef þörf er á
  • geta haldið trúnaðarupplýsingum leyndum

Athugið að skólaráð fjallar ekki um málefni einstakra nemenda, foreldra eða starfsfólks skóla.

Ráðið setur sér vinnuáætlun fyrir skólaárið, ákveður hve oft verður fundað, á hvað verður lögð áhersla o.s.frv. Fundargerðir skólaráðs skulu birtast á vefsíðu skólans.

Í skólaráði Grunnskólans Hellu sitja eftirtaldir aðilar skólaárið 2025 – 2026

Fulltrúi stjórnenda                  Kristinn Ingi Austmar Guðnason

Fulltrúar kennara                   Alexandra Lind Elínardóttir og Hjördís Pétursdóttir (varamaður)

Fulltrúi annars starfsfólks      Hlín Magnúsdóttir og Lovísa Björk Sigurðardóttir (varamaður)

Fulltrúar foreldra                   Dagný Ósk Bjargardóttir og Kristrún Sif Kristinsdóttir

Fulltrúar nemenda                  Kristín Birta Daníelsdóttir og Emilía Sif Sigurþórsdóttir

Grenndarsamfélag                 Sigrún Ólafsdóttir

Fundargerðir Skólaráðs