Grunnskólinn Hellu er heildstæður grunnskóli þar sem grundvöllur starfsins er fræðsla og uppeldi sem byggir á Aðalnámskrá grunnskóla og stefnu Byggðasamlagsins Odda.
Í starfi skólans er lögð rík áhersla á mikilvægi góðrar samvinnu við allt skólasamfélag skólans enda á ein styrkasta stoðin í hverju samfélagi að vera góður grunnskóli. Í skólastarfinu viljum við að nemendur, kennarar og annað starfsfólk nái hámarksárangri störfum sínum. Því er reynt að móta starfið af metnaði og hvatningu til samvinnu og sjálfstæðra verka þar sem hver og einn fær notið sín á eigin forsendum.
Unnið er í skólanum eftir stefnu um „Jákvæðan aga“ þar sem meðal annars er lagt upp úr því að samskipti einstaklinga grundvallist á jákvæðum uppbyggilegum samskiptum, gagnkvæmri viðringu, kurteisi og tillitssemi.
Leiðarljós Grunnskólans Hellu byggja á einkunarorðum skólans sem eru: virðing, vinátta og víðsýni
Einkunarorðunum er ætlað að:
– skapa jákvætt andrúmsloft og stuðla að vellíðan allra nemenda og starfsmanna
– allir nemendur finni í skólanum öryggi og væntumþykju, sem byggist á umhyggju og jafnrétti
– nemendur öðlist sjálfstraust og jákvæða lífsýn.
– nemendur öðlist færni í mannlegum samskiptum svo sem tillitssemi, umburðarlyndi og sýni gagnkvæma virðingu
– nemendur verði ábyrgir með heilbrigðan metnað og tilbúnir að takast á við hið óþekkta
– skapa hvetjandi og uppörvandi námsumhverfi, þar sem nemendum gefst kostur á að vinna sjálfstætt eða með öðrum
– framsetning kennslunnar miðist við þarfir einstakra nemenda þar sem tekið er tillit til mismunandi þroska og getu
– nemendur öðlist þekkingu á umhverfi sínu, menningu og námsefni
– nemendur temji sér góða námstækni, öðlist skapandi hugsun, geti valið og hafnað og hafi ánægju af námi
– nemendur öðlist þá grunnþekkingu sem nýtist þeim í framtíðarnámi og starfi, auk trúar á gildi menntunar og skólagöngu
– hafa gott samstarf við heimilin og aðra þá aðila sem að skólanum koma s.s. sveitarstjórn, stoðþjónustu, önnur skólastig o.fl.
– skólinn sé öruggur vinnustaður og nemendur læri að varast hættur í umhverfi sínu
– umgengni og framkoma nemenda sé með þeim hætti að refsinga sé ekki þörf
– nemendur læri að virða reglur samfélagsins og verði hæfir þjóðfélagsþegnar
Árangursríkt og öflugt skólastarf byggir á góðri samvinnu og gagnkvæmu trausti heimilis og skóla. Forráðamenn nemenda þekkja börnin sín best og því er nauðsynlegt að þeir séu í góðri tengslum við kennara og skólastjórnendur. Mikilvægt er að þeir hafi samband hvenær sem þeir telja þörf á, til að efla og styrkja tengslin við skólann um leið og þeir styðja með góðri samvinnu við náms- og félagsfærni barna sinna.