Foreldrar og börn í Rangárþingi ytra hafa aðgang að tengilið í leik- og grunnskólum
sveitarfélagsins.
Tengiliður farsældar í Grunnskólanum Hellu er:
Sigurlaug Hauksdóttir – aðstoðarskólastjóri
Netfang: sigurlaug@grhella.is
Tengiliður hefur hagsmuni barns að leiðarljósi í samstarfi og samráði við foreldra og barn.
Hlutverk tengiliðar er að:
- Veita upplýsingar um þjónustu í þágu farsældar barns.
- Aðstoða við að tryggja aðgang að frummati á þörfum barns.
- Skipuleggja og fylgja eftir samþættingu fyrsta stigs þjónustu í þágu farsældar barns.
- Koma upplýsingum til sveitarfélags um þörf fyrir tilnefningu málstjóra þjónustu í
þágu farsældar barns. - Taka þátt í starfi stuðningsteymis eftir því sem við á.