Skóladagheimili

Á vegum skólans er starfrækt skóladagheimili, sem er ætlað nemendum úr 1. – 4. bekk. Starfsemi skóladagheimilisins hefst strax eftir skólatíma barnanna og er opið til kl. 16.00.

Á skóladagheimilinu er börnunum boðið upp á ávexti. Forráðamenn greiða sérstaklega fyrir dvöl barna sinn eftir kl. 15.00 á skóladagheimilinu sem og fyrir síðdegishressingu. Skóladagheimið er staðsett í húsnæði grunnskólans að Útskálum 6 – 8 í stofum 4, 5 og 6.

Á skóladagheimilinu fá börnin tækifæri til að leika sér og njóta samveru í vernduðu og skapandi umhverfi. Reynt er að gera andrúmsloftið eins heimilislegt og kostur er og aðlaga það leikþörf barnanna. Starfsemi skóladagheimilisins byggist að öllu leyti á þeirri stefnu í uppeldi barna sem skólinn hefur sett sér.

Á skóladagheimilinu starfa að öllu jöfnu fimm stuðningsfulltrúar auk umsjónarmanns.

Allar ferðir nemenda á starfstíma skóladagheimilisins s.s. ferðir á kór- og íþróttaæfingar í tónlistarskóla o.fl. eru á ábyrgð forráðamanna.

Sími skóladagheimilis er: 8412382 og 4887030