Skólalóðin

Hefð er fyrir því að líta á mörk skólalóðarinnar sem hér segir:

Að norðanverðu afmarkast lóðin af bílastæði skólabíla, bílastæðum starfsmanna og af girðingu norðan mýrarsvæðisins.

Að austanverðu afmarkast lóðin af lóðamörkum húsa við Heiðvang og litið er svo á að íþróttavöllurinn sé innan skólalóðar.

Að sunnanverðu afmarkast lóðin af vegbrún og bílastæðum við Þingskála.

Að vestanverðu afmarkast lóðin af lóðamörkum húsanna við Þrúðvang og síðan af austurveggjum íþrótta- og sundlaugarhúss.