Forföll og leyfi
Öll forföll ber að tilkynna skólanum eins fljótt og hægt er . Ef nemendur mæta ekki í skólann að morgni og tilkynning berst ekki til skrifstofu skólans um eðlileg forföll eða leyfi, mega foreldrar búast við að ritari skólans hringi heim til viðkomandi til þess að kanna af hverju nemandinn mætir ekki. Þetta er m.a. gert til þess að auka öryggi nemenda þ.e. að tryggja að öll börn sem fara að heiman að morgni skili sér í skólann. Ef nemendur þurfa að fá leyfi frá skólasókn í fleiri en tvo daga þurfa forráðamenn að sækja um það skriflega til skólastjórnenda. Leyfi til lengri eða skemmri tíma veitir skólastjóri eða umsjónarkennari.
Símar skólans eru:
Afgreiðsla: 488 7020
Skólastjóri: 488 7021
Aðstoðarskólastjóri: 488 7022
Kennarastofa: 488 7023
Netfang: grhella@grhella.is