Heimsóknir í skólann

Heimsóknir í Grunnskólann Hellu mega aldrei raska öryggi, friðhelgi eða velferð barna og eiga helst að vera fyrirfram ákveðnar en ekki óvæntar.

Forráðamenn eru velkomnir í skólann en ætlast er til að ekki sé gengið inn í kennslustundir án leyfis kennara.

Heimsóknir annarra aðila þurfa að tengjast námskrá eða uppeldishlutverki skólans þar sem hlutleysis er gætt og ekki er um að ræða auglýsingar eða hvers kyns áróður.

Gestir mega ekki taka myndir, hljóðupptökur eða myndskeið innan skólans nema með skýru leyfi. Upplýsingar um nemendur eru trúnaðarmál samkvæmt persónuverndarlögum.

Mælst er til þess gestir geri vart við sig á skrifstofu skólans við komu í skólann.

Ætlast er til þess að gestir sem koma í skólann og forráðamenn sem þurfa af einhverjum ástæðum að dvelja inn á kennslusvæði nemenda skrifi undir trúnaðaryfirlýsingu.