Skólareglur

Samkvæmt 8. og 9.gr. Reglugerðar um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum nr.1040/2011 skal í hverjum skóla setja skólareglur sem skylt er að fara eftir.

Óásættanleg hegðun

Óásættanleg hegðun er:

– ítrekuð brot á skólareglum

– ítrekað ekki farið að fyrirmælum starfsfólks

– ítrekuð truflun á vinnufriði

– dónalegt orðbragð og niðrandi samskipti

– ógnandi og/eða ofbeldisfull samskipti

– beiting ofbeldis

Skólasókn

Reglur um skólasókn

Reglur um skólasókn

Verklag vegna samskipta- og hegðunarvanda nemanda

  1. Umsjónarkennari/viðkomandi kennari ræðir við nemanda. Samskiptin eru skráð í dagbók nemandans í Mentor eða útfyllingarblað sett í skjalamöppu nemanda.
  2. Umsjónarkennari/viðkomandi kennari ræðir við forráðamann nemanda. Samskiptin eru skráð í dagbók nemandans í Mentor eða sett í skjalamöppu nemanda.
  3. Umsjónarkennari/viðkomandi kennari leitar leiða til lausnar á málum nemanda. Hann kallar forráðamann til fundar, nemandann, fagkennara, námsráðgjafa, fulltrúa frá skólaþjónustu eða aðra þá sem hann telur að geti aðstoðað við lausn.  Tillaga að lausnarferli og þau úrræði sem ákveðið er að grípa til eru skráð á undirritað útfyllingarblað sem er vistað í skjalamöppu nemandans, fundur skráður í dagbók nemandans í Mentor. Næstu skref, ef lausnarferli virkar ekki, útskýrð fyrir hlutaðeigandi aðilum.
  4. Umsjónarkennari  vísar máli nemanda til skólastjórnanda. Skólastjórnandi heldur fund með forráðamanni, nemanda og þeim fagaðilum sem hann telur rétt að komi að lausn málsins.  Frekari lausna leitað í samráði allra aðila.  Samskipti og ákvarðanir eru skráð á undirritað útfyllingarblað sem vistað er í persónumöppu nemandans, fundur skráður í dagbók nemandans í Mentor.  Næstu skref, ef lausnarferli virkar ekki, útskýrð fyrir hlutaðeigandi aðilum.
  5. Skólastjórnandi vísar máli nemanda í samskipta og aðgerðarteymi auk þess sem mál nemanda er tekið upp í Nemendaverndarráði. Fundur haldinn með forráðamanni, nemanda og öðrum þeim sem þurfa þykir.  Leitað til skólaþjónustu varðandi auknar lausnarleiðir. Áætlun næstu aðgerðir samkvæmt stefnu skólans og samkvæmt lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Samskipti og ákvarðanir eru skráð á undirskrifað útfyllingarblað sem vistað er í persónumöppu nemandans, fundur skráður í dagbók nemandans í Mentor.  Næstu skref, ef lausnarferli virkar ekki, útskýrð fyrir hlutaðeigandi aðilum enda vísar skólastjóri þá málinu til Barnaverndar.
  6. Á öllum stigum ferils í samskipta- og hegðunarvanda getur skólinn, í samvinnu við sérfræðiþjónustu skóla, foreldra og nemendur, sett niður skólaáætlun sem getur gilt í tiltekinn tíma sem allir aðilar eru ásáttir um.
  7. Komi upp ágreiningur milli heimilis og skóla skal lausna leitað í samráði við skólaþjónustu sveitarfélagsins.

Verkferill vegna samskipta- og hegðunarvanda

Hvernig aðstoðum við nemendur í vanda

Verklag vegna ofbeldisfullrar hegðunar barns

Hvert er viðbragð okkar við obeldisfullri hegðun

Viðbrögð við endurtekin eða alvarleg brot á skólareglum

Ef nemandi gerist sekur um alvarleg eða endurtekin brot á skólareglum getur skólastjóri vísað honum úr skóla um stundarsakir eða ótímabundið, enda tilkynni hann foreldrum nemanda og skólanefnd tafarlaust þá ákvörðun, sbr. 14. gr. laga nr. 91/2008, um grunnskóla.  Um slíka ákvörðun gilda ákvæði stjórnsýslulaga.

Gerist nemandi sekur um alvarlegt brot á skólareglum eða landslögum, hvar sem hann er á vegum skólans, verður hann sendur heim á kostnað foreldris, í samræmi við málsmeðferðarreglur vegna brottvísana úr skóla eins og fram kemur í reglugerð um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum.

Jafnframt er heimilt að meina nemanda þátttöku í félags- og tómstundastarfi á vegum skólans vegna agabrota í félags- og tómstundastarfi. Tryggja skal að nemandi sé í umsjón starfsfólks á vegum skólans á skólatíma eða í öðru kennsluúrræði innan skólans. Einnig er hægt að kalla eftir því að foreldri sæki viðkomandi nemanda í skólann.

Valdi nemandi tjóni á eigum skólans, starfsfólks eða skólafélaga sinna gilda almennar reglur skaðabótaréttar.