Almennt um hegðun nemenda
Í grunnskólalögum segir að nemendur beri ábyrgð á eigin námi, á framkomu sinni og samskiptum með hliðsjón af aldri og þroska. Þeim ber að hlýða fyrirmælum kennara og annars starfsfólks og fara efir skólareglum. Ef hegðun nemanda reynist verulega áfátt ber kennara hans að leita orsaka þess og reyna að ráða á því bót, m.a. með viðtölum við nemandann sjálfan og foreldra hans. Verði samt ekki breyting á til batnaðar skal kennari leita aðstoðar skólastjóra og sérfróðra ráðgjafa skólans sem leita leiða til úrbóta, eftir atvikum að teknu tilliti til hlutverks barnaverndaryfirvalda.

Í Grunnskólanum Hellu er unnið með uppeldisstefnu sem nefnist Jákvæður agi (Positive Discipline).
Jákvæður agi miðar að því að móta skólabrag sem einkennist af umhyggju, gagnkvæmri virðingu, reisn og festu.
Með Jákvæðum aga er lögð áhersla á að:
- efla ábyrgð barna og kenna þeim að leita lausna
- forðast valdabaráttu milli fullorðinna og barna
- nota hvatningu og hrós í stað umbunar
- byggja á styrkleikum barna
- fá börn til samstarfs og efla þannig sjálfsmynd þeirra
- auka samvinnu heimilis og skóla
- skapa góðan bekkjaranda sem stuðlar að því að nám geti farið fram
- nota bekkjarfundi til að kenna félagsfærni og jákvæða hegðun
- skilja ástæður hegðunar í stað þess að einblína á afleiðingar hegðunar