Frábær íþróttamenning í skólanum okkar

Þessa vikuna er bandývika í skólaíþróttum. Það hefur verið vinsælt meðal nemenda að spila bandý undanfarin ár og það skapast mikil stemning og virkni í tímum í öllum bekkjum skólans. Í dag fór 1 bekkur í bandý í fyrsta skipti og gekk það líka svona ljómandi vel.

Hér má sjá video af tíma dagsins

Nú er miðönnin ný hafin og því nýr hópur í skólahreysti. Það er óhætt að segja að metnaðurinn sé mikill en það er ekkert gefið eftir á æfingum. Mörg hver fara í frímínútum og taka sett og svo gera allir sitt besta á æfingum. Ótrúlega gaman að þjálfa svona metnaðarfulla einstaklinga.

Hér má sjá stutt video af æfingu dagsins