Gul söngstund

Söngstund á yngsta stigi er fastur liður í starfi skólans. 

Valgerður Sigurðardóttir stýrir starfinu og var söngstundin í dag sú þriðja sem af er ári. Það var gaman að líta yfir syngjandi hópinn og sjá fallega, bjarta og gula litinn alls ráðandi.