Íþróttadagur Grænfánans 2024-2025

Í dag var íþróttadagur Grænfánans. Allir nemendur skólans áttu saman frábæra stund í íþróttahúsinu þar sem þeir reyndu sig við margvíslegar æfingar. Nemendum var skipt upp í 16 aldursdreifða hópa þar sem eldri nemendur gátu aðstoðað þá yngri. Það var gaman að sjá hve margir nemendur lögðu sig alla fram og gerðu sitt besta. Til þess var jú leikurinn gerður.

Þær greinar sem sem keppt var í voru:

  • planki
  • boðhlaup
  • vítaspyrnukeppni
  • armbeygjur
  • uppsetur
  • froskar með hoppi

Fjöldinn af æfingum sem nemendur kláruðu var ótrúlegur. Til að mynda hélt Elísa Margrét í 2. bekk planka stöðu í 20 mínútur og átti helling inni ennþá. Mörg gerðu yfir 100 froska með hoppi, yfir hundrað uppsetur og einhverjir gerðu 100 armbeygjur (á hnjám) sömuleiðis. Frábær dagur og frábærir nemendur.

Hér er að finna fullt af myndum fra íþróttadeginum