Skemmtileg heimsókn

Gunnar Helgason rithöfundur kom til okkar í heimsókn miðvikudagsmorguninn 13. nóvember. Hann kynnti bækur sínar fyrir nemendum 3. - 7. bekkjar og endaði bókakynninguna á upplestri upp úr nýjustu bók sinni, STELLA SEGIR BLESS. Það er tíunda og jafnframt síðasta bókin í seríunni um Stellu, sem hófst með Mömmu klikk.

Það er alltaf jafn gaman að fá Gunnar í heimsókn. Hann segir skemmtilega frá og nær að halda athyglin barnanna algjörlega frá fyrstu mínútu.

Kærar þakkir fyrir okkur og sjáumst vonandi að ári.

 Nokkrar myndir frá heimsókninni