Frá og með 4. nóvember munum við skipta úr sundi yfir í íþróttir. Þá er mikilvægt að nemendur komi með íþróttaföt og handklæði með sér í skólann á þeim dögum sem íþróttir eru í stundatöflu.
Þessi vika er síðasta sundvikan í bili og þá er hefðin að hafa fata- og björgunarsund á dagskrá. Það hefur heldur betur verið gaman þessa vikuna. Nokkrir nemendur 1. bekkjar fullyrtu að fatasundsdagurinn væri besti dagur lífs þeirra :)
Hér má sjá myndir frá fata- og björgunarsundi vikunnar
Útskálum 6-8 Sími á skrifstofu: 4887020 Netfang: grhella@grhella.is |
Skrifstofa skólans er opin á skólatíma
|
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 488 7020 / grhella@grhella.is / mentor.is
Fyrir leyfi til lengri tíma þarf sérstakt leyfi frá skólastjórnendum: Umsóknareyðublað