Skólareglur Grunnskólans Hellu
- afleiðinar – ekki refsingar
- Nemendur bera ábyrgð á framkomu sinni.
- Nemendur fá tækifæri til að bæta hegðun sína og/eða ástundun.
Nemendur og starfsmenn sýna hverjir öðrum virðingu,
kurteisi og tillitssemi.
Skólinn er vinnustaður þar sem öllum á að líða vel.
➢Nemendum ber að hlíta fyrirmælum starfsmanna skólans.
Við biðjumst afsökunar ef við brjótum þessa reglu.
➢ Nemendum ber að mæta stundvíslega í allar kennslustundir.
Við bönkum á dyr og biðjumst afsökunar ef við komum of seint.
➢ Nemendur fara úr útiskóm, yfirhöfnum og taka af sér húfur
áður en farið er í kennslustund og mötuneyti. Þeir ganga vel og
snyrtilega um húsnæði skólans og eigur hans, s.s. bækur,
kennsluáhöld og húsgögn.
Við göngum vel um og göngum frá eftir okkur.
➢ Nemendur geyma hverskonar hjól/farartæki sem þeir koma á í
skólann á skilgreindu svæði utandyra. Notkun þeirra,
línuskauta, hjólabretta og hlaupahjóla er óheimil á skólatíma.
Skemmdir á slíkum farartækjum eru ekki á ábyrgð skólans.
➢ Nemendur hafa með sér þau gögn sem til þarf í skólann, s.s.
bækur, námsgögn og leikfimi-/sundföt. Þeir stundi nám sitt af
kostgæfni og virði rétt annarra til að hafa góðan vinnufrið í
bekknum.
Við stefnum á virkni í kennslustundum og virðingu fyrir
náunganum, þannig stuðlum við að meiri vellíðan í skólanum.
➢ Föstudagsnesti og/eða annað nesti sem nemandi kýs að koma
með í skólann skal vera hollt. Sætindi, gosdrykkir og önnur
óhollusta er ekki leyfileg á skólatíma nema um annað sé samið.
Við stuðlum að hollustu og lýðheilsu allra í skólanum.
➢ Nemendum er óheimilt að fara út af skólalóðinni á skólatíma.
Á skólatíma eru nemendur á ábyrgð skólans og því mikilvægt
að enginn yfirgefi skólann án þess að biðja um leyfi.
➢ Nemendum er óheimilt að nota farsíma skólatíma. (sjá símareglur) Ef nemendur koma með síma í skólann skal hann vera stilltur á hljóðlaust og geymdur á skrifstofu skólans.
➢ Reykingar, rafrettur, tóbak og notkun hvers kyns
vímuefna er bönnuð í skólanum, á skólalóð og hvar sem
nemendur eru á vegum skólans.
Tafarlaust er haft samband við foreldra/forráðamenn ef
slíkt kemur upp.
Viðauki og verklagsreglur varðandi skólasókn..
- Grunnskólanemendur eru skólaskyldir samkvæmt lögum um
grunnskóla nr.91/2008. Á foreldrum hvílir sú skylda að börn
sæki skóla. - Foreldrar eða forráðamenn skulu tilkynna forföll fyrir kl. 8:10
í skólann og daglega meðan á veikindum stendur. - Leyfi til lengri tíma en tveggja daga þarf að sækja um skriflega
til skólans með a.m.k. viku fyrirvara.
(eyðublað til útprentunar) - Nemendum ber að hlíta fyrirmælum starfsfólks skólans í öllu
því sem skólann varðar, fara eftir skólareglum og fylgja
almennum umgengnisvenjum í samskiptum við starfsfólk og
skólasystkini. Sjá 13. gr grunnskólalaga frá 2008 (91/2008)
um réttindi og skyldur nemenda. - Verði nemandi uppvís að því að valda vísvitandi skemmdum
á munum skólans skal hann eða foreldrar/forráðamenn hans
bæta skaðann að fullu. - Ef nemandi veldur verulegri truflun í kennslustund og
fullreynt er að hann lætur ekki segjast við áminningu kennara
er heimilt að vísa honum í annað úrræði í samráði við - skólastjórnendur. Kennarinn sem vísar nemanda úr tíma
hefur samband við umsjónarkennara og þeir koma sér saman
um hvernig skal staðið að því að tilkynna atvikið. Það skal
áréttað að brottvikning úr kennslustund er neyðarúrræði.
Leiðbeiningar til kennara varðandi skráningu á skólasókn
nemenda og viðbrögð við brotum á skólareglum.
➢ Ef nemandi mætir eftir að mætingarskráningu er lokið telst
hann hafa komið of seint í tíma
➢ Ef nemandi mætir þegar kennslustund er hálfnuð telst hann
hafa verið fjarverandi.
➢ Kennari hefur samband við ritara varðandi þá sem eru ekki
mættir og kannar hvort tilkynnt hafa verið forföll. Ef ekkert
hefur verið tilkynnt er hringt heim og spurst fyrir um
nemandann.
➢ Kennarar á yngsta- og miðstigi eiga að yfirfara skólasókn í
Mentor vikulega og skrá inn ef eitthvað vantar.
➢ Kennarar á unglingastigi eiga að skrá skólasókn í Mentor ekki
sjaldnar en einu sinni í viku og daglega ef nemandi mætir illa.