Undankeppnin fyrir Skólahreysti var haldin í skólanum nú á dögunum þar sem þó nokkrir nemendur í 8. – 10. bekk tóku þátt. Mikil stemning var í salnum og stóðu keppendur sig allir með prýði.
Lið skólans skólaárið 2025-2026 er sem hér segir:
Viðar Freyr Garðarsson – upphífingar og dýfur
Hafdís Laufey Ómarsdóttir – armbeygjur og hreystigreip
Jón Elli Bjarkason – hraðabraut
Elísabet Mjöll Ólafsdóttir – hraðabraut
Aron Ingi Gunnarsson – varamaður
Karitas Rós Jensdóttir – varamaður
Liðið mun keppa fyrir hönd skólans fimmtudaginn 7. maí klukkan 17:00

