
Rithöfundurinn Þórunn Rakel Gylfadóttir og myndhöfundurinn Didda Flygenring heimsóttu nemendur í 3.- 8 bekk þriðjudaginn 13. október. Þórunn Rakel fór inn í 8.bekk og ræddi þar bók sína Akam, ég og Annika sem 8.bekkur er einmitt að lesa um þessar mundir. Þá lásu þær báðar úr nýrri bók sinni, Síðasti dagurinn, fyrir nemendur 3.-7.bekkjar. Þórunn Rakel skrifaði þá bók ásamt Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, 14 ára, en Didda myndskreytti. Bókin, sem er sannsöguleg, fjallar um Matthildi Yrsu og fjölskyldu hennar sem þurfti að yfirgefa heimili sitt og vini í Grindavík eftir jarðskjálfta og eldgos. Nemendur hlustuðu af athygli og voru mjög áhugasamir um bókina. Eftir upplesturinn voru þær stöllur með ritsmiðjur og hvöttu nemendur til að búa til sínar eigin sögur og bækur. Einhverjir nemendur eru nú þegar byrjaðir og hver veit nema að í okkar hópi leynast rithöfundar framtíðarinnar!
Hér má sjá fleiri myndir frá heimsókninni