
Í dag kom okkar uppáhalds Gunnar Helgason í heimsókn og las upp úr nýjustu bók sinni Sturla fyrir nemendur 4. – 8. bekkjar. Bókin er fyrsta bókin af þremur og er ansi ólík fyrri bókum Gunnars. Hugmyndina af bókinni fékk hann árið 2009 og hefur hann ferðast til all nokkurra landa á meðan hann skrifaði hana til að kynna sér staðhætti sem best. Kynningin var skemmtileg og við reiknum frekar með því að bókin verði á jólagjafalista margra nemenda fyrir komandi jól.
Hér má sjá nokkrar myndir frá heimsókninni