Þemadagar og Hrekkjavökuböll

Það hefur verið margt um að vera í skólanum okkar þessa vikuna. Á mánudag hófust þemadagar sem stóðu yfir til loka miðvikudags. Að þessu sinni var ákveðað að hafa þemadaga í stað Bæjarhellu. Þemað var fjölmenning og var unnið með öll þau lönd sem tengjast nemendum í skólanum okkar. Öllum stigum skólans var skipt upp í níu hópa þvert á bekki og vann hver hópur með tvö lönd. Verkefni hópanna var að kynna sér menningu og sérkenni þeirra landa sem þeim var úthlutað. Á miðvikudag var foreldrum og forráðamönnum svo boðið að koma og sjá afrakstur vinnu þessara rúmlega tveggja daga. Hóparnir buðu upp á ýmiskonar skemmtun svo sem veitingar, söng, dans, kynningaplaköt, brúðuleikhús og fleira.

Að skóla loknum á miðvikudag voru svo hrekkjavökuböll fyrir öll stig skólans þar sem nemendur mættu og skemmtu sér saman í allra kvikinda líki.

Hér má sjá myndir frá þemadögum og hérna frá hrekkjavökuböllunum.

Fleiri fréttir