
Kennarar og prófessorar frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands komu í heimsókn í Grunnskólann Hellu síðastliðinn föstudag, til að kynna sér Íslenskuskólann og kennsluhætti hans.
Þeir óskuðu eftir að fá að vera viðstaddir kennslu í Íslenskuskólanum og tók Ragnheiður Gísladóttir, ásamt nemendum úr 7. 8. og 9. bekk Íslenskuskólans vel á móti gestunum og veittu þeim innsýn í starfið með sýnikennslu.
Eftir sýnikennsluna var Ragnheiður með ítarlegan fyrirlestur um kennsluaðferðina sem hún hefur þróað sjálf. Góðar og mikilvægar umræður náðust á milli fræðimanna HÍ og hennar um nýsköpunina í kennsluháttunum. Grunnskólinn Hellu er í dag orðinn einn af fremstu skólum landsins og leiðandi í starfi í kennslu íslensku sem annars tungumáls.
Gaman er að segja frá því að Háskóli Íslands fjallar um Íslenskuskólann í nýútgefinni Handbók fyrir kennaranema við HÍ. Bókin fjallar um kennsluhætti og var gefin út nú á haustdögum. Kennsluhættir íslenskuskólans þykja framúrskarandi nýsköpun fyrir skólastarf grunnskóla á Íslandi.