
Félagar eru forráðamenn nemenda í skólanum. Markmið félagsins eru að vinna að velferð nemenda, styðja við skólastarfið og koma á sem bestu sambandi milli skólans og heimila nemenda.
Stjórn félagsins heldur utan um ýmsa viðburði ár hvert sem eru auglýstir á fésbókarsíðu félagsins. Dæmi um viðburði er laufabrauðsbakstur, páskabingó, fræðsluerindi og fleira.
Stjórn foreldrafélagsins skólaárið 2026 – 2027 skipa eftirtaldir:
Aðalstjórn:
Kristrún Sif Kristinsdóttir, formaður
Guðbjörg Snorradóttir, gjaldkeri
Eydís Hrönn Tómasdóttir, ritari
Meðstjórnendur:
Dagný Ósk Bjargardóttir
Ragnar Jóhannsson
Unnur Dögg Lindudóttir
Við hvetjum alla foreldra skólans til að fylgja síðu félagsins á fésbók
og kynna sér hlutverk bekkjartengla á heimasíðu skólans
Netfang foreldrafélagsins: foreldrafelaggrhella@gmail.com