Bæjarhellan

Fréttir

Starfsmenn Bæjarhellunnar vinna nú hörðum höndum að því að framleiða ýmsan varning fyrir markaðsdaginn sem verður þann 29. maí frá klukkan 11:00-13:00 í nýja matsal skólans.

Það verður margt skemmtilegt í boði, bæði afþreyging og vörur. Hér að neðan er smá kynning frá nokkrum starfsstöðvum.

Grænir fingur garðyrkjustöð verður með sumarblóm eins og Morgunfrú, Fjólur og Belis, einnig grenitré, birki og reynitré til sölu á Bæjarhellunni.

Mjúkdýraspítalinn tekur vel á móti veikum böngsum á morgun .

BH-stúdíós hvetur alla þá sem hafa góðan húmor til að koma á grínmynd ársins 2026

Boðið verður upp á glæsilega andlitsmálun

Toppasjoppan selur fjölnota poka

Hestar á priki bjóða upp á hestabraut og annan skemmtilegan varning á góðu verði

Bókabomban verður með baðsalt, baðbombur, bókamerki og litabók til sölu.

Sumarfrísfjör verður með til sölu leir, krítar, sápulög og bingó.

Hlökkum til að sjá ykkur föstudaginn 29. maí milli klukkan 11:00 og 13:00