Jólapokaval á miðstigi

Fréttir

Eins og flestir vita eru Grunnskólinn Hellu og Hótel Rangá í samstarfi. Samstarfið gengur út á það að nemendur sauma jólapoka úr gömlum sængurverum og dúkum sem hótelstarfsmenn hengja á hurðahúna hótelgesta sem gista á hótelinu yfir jólin.

Fyrir síðastliðin jól afhenti skólinn Hótel Rangá 400 jólapoka sem nemendur á miðstigi sem voru í jólapokavali höfðu saumað.

Fyrir pokana fékk skólinn iPad fyrir textílstofuna og tússliti að launum. Takk fyrir samstarfið Hótel Rangá!

Á myndunum er hluti af nemendum valsins í vetur.