
Sú hefð hefur fest sig í sessi að 7. bekkur ár hvert fari í skólabúðir að Úlfljótsvatni. Það var þann 14. september síðastliðinn sem hópurinn fór af stað og gistu nemendur ásamt umsjónarkennara tvær nætur. Ýmislegt var brallað á meðan dvöl þeirra stóð en stíf dagskrá er skipulögð fyrir alla þrjá dagana sem miðar að því að þétta hópinn. Nemendur voru alsælir með ferðina og þau verkefni sem fyrir hópinn voru lögð enda lék verðið við þau.
Fullt af myndum frá ferðinni er að finna á læstri myndasíðu skólans.
Hér er hægt að kynna sér skólabúðirnar