Haustferð unglingastigs var farin dagana 5. – 6. september. Ýmislegt skemmtilegt var brallað í ferðinni. Meðal annars var gengið upp í Reykjadal í mildu skúraveðri þar sem sum fóru í náttúrulaugarnar. Eftir gönguna var brunað í sund á Stokkseyri og svo var grillveisla um kvöldið. Nemendur gistu í Félagslundi og eftir grillveisluna var kvöldvaka þar sem Kristinn Ingi og Steini Darri spiluðu á gítar og héldu uppi stuðinu fram á kvöld.
Hér má sjá myndir frá ferðinni.
Haustferð unglingastigs
Fréttir





























































































