Birta hefur lesið bókina „Blokkin á heimsenda“ fyrir 6.bekk og þau hafa unnið nokkur verkefni tengd bókinni. Í dag áttu þau að kynna sér nokkur gefin orð á táknmáli og gera stutt myndband.
Hér koma nokkur myndbönd
myndband 1
myndband 2
myndband 3
myndband 4
myndband 5
Dröfn hefur aldrei hitt ömmu sína svo að óvænt ferðalag á afskekktu eyjuna hennar hljómar spennandi. En ferðin verður fljótlega dálítið skrýtin. Hvernig er hægt að þola svona takmarkað samband við umheiminn? Búa allir furðufuglarnir á eyjunni virkilega í einni blokk? Og er mögulegt að einhver í blokkinni vilji Dröfn og fjölskyldu hennar illt?
….”Samheldnin í blokkinni er áberandi stef, til dæmis kunna allir íbúar hennar táknmál sem þeir lærðu eftir að heyrnarlausar tvíburasystur fæddust á eyjunni.”
Blokkin á heimsenda hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 2020 og Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur 2020 og var að mati dómnefndar bæði grípandi og gamansöm.
11. febr. 2021 Dagur íslensks táknmáls
Fréttir