Þriðjudaginn 31. október er hrekkjavaka.
Af því tilefni verður haldið ball fyrir hvert og eitt skólastig hér í skólanum.
Nemendur eru hvattir til þess að mæta í búningum á ballið.
Þess má geta að það er vel hægt að búa til mjög flotta búninga úr ýmsu sem er til á heimilum fólks og hvetjum við ykkur til þess að nota hugmyndarflugið.Verðlaun verða veitt fyrir flotta og sniðuga búninga.
Tímasetningar á böllunum eru sem hér segir:
Yngsta stig: kl. 15:30 – 16:30
Miðstig; kl. 17:00 – 19:00
Elsta stig: kl. 19:30 – 22:00
Sjáumst hress á balli og við hlökkum til að sjá ykkur í skrautlegu búningunum ykkar.
