Vel heppnaður íþróttadagur Grænfánanefndar

Fréttir

Á föstudaginn var haldinn íþróttadagur á vegum Grænfánanefndar skólans. Það var gaman að sjá keppnisskapið brjótast fram í nemendum en greinarnar byggðust á að hver og einn gerði sitt besta og leggði sig fram fyrir sitt lið. Liðin voru blönduð af nemendum úr 1. – 10. bekk og var keppt til að mynda í kviðæfingum, í því að planka og í armbeygjum. Við þökkum Grænfánanefnd kærlega fyrir skipulagið á þessum skemmtilega degi.
Hér má einnig sjá fleiri myndir: Grænfánadagur/íþróttadagur 5. janúar 2024