Frábær frammistaða í undankeppni Skólahreysti!

Fréttir

Lið Grunnskólans Hellu keppti í undankeppni Skólahreysti í gær þann 18. apríl og bar sigur úr bítum í sínum riðli. Með sigrinum tryggði liðið sér sæti í úrslitakeppninni sem fer fram þann 25. maí næstkomandi. 
Það hefur verið magnað að fylgjast með undirbúningnum hjá keppendum síðustu mánuði en öll hafa þau lagt mikið á sig og toppað sig hvað eftir annað. Frábærar fyrirmyndir fyrir komandi keppendur en framtíðin er sko sannarlega björt hvað varðar skólahreysti í skólanum okkar. 
Það var mikil stemmning fyrir keppninni hjá öllum nemendum skólans en gærdagurinn allur einkenndist af gleði, samkennd, samvinnu og auðvitað rauða litnum. Nemendur 7. – 10. bekkjar hófu undirbúning strax um morguninn og var kringlunni okkar breytt í förðunar og hárgreiðslustofu á einu augabragði þar sem allir hjálpuðust að. 
Hér má sjá fullt af myndum frá deginum
-EH