Veðrið hefur heldur betur leikið við okkur síðustu daga og hafa kennarar og nemendur nýtt sér það og farið út með námið.
2. bekkur fór einmitt út með námsbækurnar sínar í gær og tók þá eftir því að mikill sandur var á stéttinni í kringum skólann eftir vindasaman vetur. Þau tóku sig því til í dag, fengu kústa í hönd og sópuðu og gerðu fínt fyrir utan inngang yngsta stigs.
Vel gert 2. bekkur og takk fyrir.
-EH
2. bekkur er kominn í sumargír
Fréttir