Gunnar Helgason rithöfundur kom til okkar í heimsókn miðvikudagsmorguninn 13. nóvember. Hann kynnti bækur sínar fyrir nemendum 3. – 7. bekkjar og endaði bókakynninguna á upplestri upp úr nýjustu bók sinni, STELLA SEGIR BLESS. Það er tíunda og jafnframt síðasta bókin í seríunni um Stellu, sem hófst með Mömmu klikk.
Það er alltaf jafn gaman að fá Gunnar í heimsókn. Hann segir skemmtilega frá og nær að halda athyglin barnanna algjörlega frá fyrstu mínútu.
Kærar þakkir fyrir okkur og sjáumst vonandi að ári.
Nokkrar myndir frá heimsókninni
Skemmtileg heimsókn
Fréttir






