Leikskólinn Heklukot óskar eftir allskonar fyrir Jólahelluna 2024

Fréttir

Kæru sveitungar
Við á leikskólanum Heklukoti ætlum að hafa flóamarkað með jólaskrauti og heilum leikföngum á Bæjarhellu Grunnskólans Hellu 16. – 19. desember næstkomandi. Ef þið viljið losa ykkur við jólaskraut og/eða leikföng þá viljum við í leik- og grunnskólanum endilega gefa því nýtt líf
Við tökum á móti skrauti og dóti á Heklukoti. Einng getið þið haft samband við Hrafnhildi Andrésdóttur og hún sótt það til ykkar
Síðasti skiladagur er 13. desember.
Fyrir hönd grænfánanefndar leikskólans Hrafnhildur.