Þá er desember genginn í garð með öllu sínu hátíðlega uppbroti.
Í dag var jólafatadagur í skólanum, fyrstu bekkirnir fengu óvænt boð í Kakókot og sameiginleg jólasöngstund var í kringlu skólans. Söngstundin var notaleg og tóku flest börnin vel undir. Við erum einnig heppin með starfsfólk og stjórnendur í skólanum okkar sem er hvert öðru færara í hljóðfæraleik og söng. Það voru þau Kristinn og Kristín sem spiluðu á hljómborð og gítar og stöllurnar Hófí og Valgerður spiluðu sömuleiðis á hristur, trommur og hljómborð.
Hér má sjá myndir frá Jólasöngstundinni í morgun
Uppáhalds desember
Fréttir












































































