Í liðinni viku var dansvika í skólanum. Danskennarinn Silja Þorsteinsdóttir frá Selfossi kom til okkar og kenndi öllum bekkjum skólans dans í eina kennslustund alla daga vikunnar. Danskennslan gekk ljómandi vel og erum við öll í skýjunum yfir gleðinni sem henni hefur fylgt. Í lok vikunnar var haldin glæsileg danssýning sem aðstandendur voru velkomnir á. Mikill fjöldi gesta mætti á sýninguna og höfðu allir gaman af.
Við þökkum Silju danskennara kærlega fyrir frábæra viku og ykkur kæru aðstandendur fyrir að mæta á sýninguna.
Hér má sjá myndir frá liðinni viku og myndbönd frá sýningunni
Myndir frá dansviku
1 . bekkur myndband
2. bekkur myndband
3. bekkur myndband
4. bekkur myndband
5. – 6. bekkur myndband
7.- 8. bekkur myndband
9. – 10. bekkur myndband
1. – 3. bekkur hópdans
3. – 10 .bekkur hópdans









































































































































