Gott gengi Grunnskólans Hellu á upplestrarkeppni

Fréttir

Fulltrúar Grunnskólans Hellu á Röddinni, upplestrarkeppni grunnskóla í Rangárvallasýslu, Vestmannaeyja og Vestur-Skaftafellssýslu, stóðu sig prýðilega vel. Keppnin fór fram þriðjudaginn 14. apríl á Hótel Kötlu í Vík í Mýrdal. Keppnin var gríðarlega jöfn að þessu sinni og átti dómnefnd úr vöndu að velja sigurvegara. Fulltrúar skólans voru Hrafnkell Frosti Ómarsson og Þorbjörg Helga Björgvinsdóttir sem stóðu sig bæði með mikilli prýði og voru skólanum okkar til sóma. Úrslit keppninnar urðu þau að fulltrúi frá Hvolskóla tók 3. sæti, Hrafnkell tók annað sæti fyrir hönd okkar skóla og fulltrúi frá Grunnskóla Vestmannaeyja sigraði.