Vel heppnuð vorhátíð

Fréttir

Þann 21. apríl var vorhátíð skólans haldin í blíðskapar veðri. Þemað á hátíðinni var vinátta og kærleikur sem sást glöggt í þeim fjölbreyttu atriðum sem nemendur sýndu. Meðal atriði var frumsaminn dans, fallegur söngur með fallegan boðskap, myndbönd og leikrit. Sérstaka athygli vöktu tröllin og böggarnir úr kvikmyndinni Tröll og persónurnar úr Latabæ þau Glanni glæpur, Solla stirða og Íþróttaálfurinn.

Að sýningu lokinni buðu nemendur 10. bekkjar og foreldrar þeirra upp á kjúklingasúpu, brauð, vorrúllur og kökur en ágóðinn fer í ferðasjóð þeirra.

Á myndasíðu skólans má sjá fleiri myndir