Fatasund og björgun

Fréttir

Þessa vikuna fara allir bekkir grunnskólans í fatasund og fá öll börnin að spreyta sig í björgunarsundi. Nemendur 1. – 4. bekkjar mæta í stuttbuxum og stuttermabol en nemendur 5. – 10. bekkjar í síðbuxum og síðerma peysum. Allir nemendur í 4. – 10. bekk æfa sig með bekkjarfélaga, en yngri nemendur með “dúkku” og með félaga ef þau vilja og treysta sér til. Mikilvægt er fyrir alla að prufa að vera í fötum í vatni því slysin gera jú ekki boð á undan sér. Einnig er mikilvægt að kenna björgunarsund og nauðsynlegt er að kunna að fljóta á bakinu í fötum.

Hér má sjá myndir af hluta nemenda í 1. og 2. bekk æfa sig.