Eimskip, í samstarfi við Kiwanishreyfinguna á Íslandi, afhendir hjálma til allra barna í 1. bekk á Íslandi. Samstarf Kiwanis og Eimskips hefur staðið yfir frá árinu 2004 og hafa verið afhentir yfir 90.000 hjálmar á þessum árum.
Nemendur 1. bekkjar Grunnskólans Hellu fengu reiðhjólahjálmana sína afhenta fimmtudaginn 30. apríl og voru börnin öll alsæl með hjálmagjöfina.
