Bæjarhellan verður dagana 26. – 29. maí næstkomandi og er eftirvæntingin mikil að venju. Fjöldi starfsstöðva hefur aldrei verið meiri og alls kyns nýjar hugmyndir hafa litið dagsins ljós í þeim efnum. Bæjarráð þetta árið skipa þau Yanael og Eldur í 10. bekk, Hafdís og Björgvin 9. bekk og Dóra María og Aþena í 8. bekk. Bæjarhelluráð hefur ákveðið að styrkja Dvalarheimilið Lund í ár en hver starfsmaður Bæjarhellunnar mun leggja til 100 hellur af sínum launum til peningagjafarinnar.

