Líf og fjör á unglingastigi

Fréttir

Það hefur verið nóg um að vera hjá nemendum 10. bekkjar undanfarið. Miðvikudaginn 13. maí var vorferð unglingastigs þar sem nemendur 8.-10. bekkjar fóru á Stokkseyri á kajak þar sem þeir réru um Löngudæl. Á heimleiðinni var skundað í sund á Selfossi og notið í góðra vina hópi. Í dag, fimmtudaginn 21. maí komu útskriftarnemendur heim úr ævintýralegri útskriftarferð sem þeir hafa safnað fyrir síðan í lok 9. bekkjar.

Mæli með að skoða myndir af báðum ferðum inni á myndasíðum skólans.